innri vefur
Fréttir
23.8.2010

Nýr aðalvöllur og áhorfendastúka tekin í notkun á Selfossi

Þann 19 ágúst sl. voru nýr aðalvöllur og áhorfendastúka knattspyrnufélagsins á Selfossi tekin í notkun.  Undanfarin ár hefur Mannvit unnið töluvert með Ungmennafélagi Selfyssinga við gerð nýrrar glæsilegrar íþróttaaðstöðu á Selfossi.
9.7.2010

Hitaveituframkvæmdir Mannvits í Ungverjalandi

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Pál Kovács, vararáðuneytisstjóri þróunarmálaráðuneytis Ungverjalands, og Márk Győrvári, borgarstjóri Szentlőrinc, lögðu í gær hornstein að hitaveitu sem er hönnuð af verkfræðistofunni Mannviti fyrir ungverska einkafyrirtækið PannErgy.
7.7.2010

Mannvit fær styrk frá Umhverfis- og orkurannsóknarsjóði OR

Mannvit hlaut á dögunum styrk frá Umhverfis- og orkurannsóknarsjóði Orkuveitur Reykjavíkur (UOOR).  Verkefnisstjóri er Ari Ingimundarson vélaverkfræðingur hjá Mannviti.  Styrkurinn er til að vinna að verkefni sem kallast – Hagkvæmari nýting gufu í Hellisheiðarvirkjun. Verkefnið er unnið í samvinnu jarðvarmavirkjanasviðs og upplýsingatæknikjarna Mannvits.
30.6.2010

Styrkur úr Orkusjóði

Mannvit fékk á dögunum styrk úr Orkusjóði til verkefnisins „Tilraunaframleiðsla á eldsneyti úr lífmassa“ og nemur 3,2 m.kr.  Verkefnið er að mestu unnið á starfsstöð Mannvits á Akureyri og er framhald verkefnis sem m.a. hlaut styrk úr Orkusjóði í fyrra.
2.6.2010

Bætir aska úr Eyjafjallajökli eiginleika steinsteypu

Efnasamsetning gosöskunnar úr Eyjafjallajökli er svipuð og ösku sem fellur til við kolabrennslu, en hún er víða notuð til að bæta eiginleika steinsteypu. Starfsfólk Rannsóknarstofu Verkfræðistofu MANNVITS sáu því tækifæri til að kanna hvort askan úr eldgosinu gæti nýst sem bætiefni í steinsteypu eins og áðurnefnd kolaaska (flyash á ensku), en hún er nýtt að takmörkuðu leyti hér á landi, m.a. vegna hás flutningskostnaðar. Niðurstöðurnar má lesa hér.
26.5.2010

Nýr öflugur vettvangur jarðhitasamstarfs

Forystumenn átta leiðandi fyrirtækja í jarðhitanýtingu hér á landi skjalfestu í gær þann ásetning sinn að starfa saman að jarðvarmaverkefnum erlendis. Orkuveita Reykjavíkur (OR), sem er eitt stærsta jarðhitafyrirtæki heims,  leiðir samstarfið og aðild að því eiga einnig þrjár stærstu verkfræðistofur landsins
25.5.2010

Ársskýrsla Mannvits 2009

Ársskýrsla Mannvits fyrir árið 2009 er komin út og má nálgast hér á vefnum. Þrátt fyrir harðindi í rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja náðist viðunandi rekstrarárangur en reksturinn dróst saman um 25% frá árinu 2008. Farið var strax í aðgerðir 2008 til að bregðast við breyttum aðstæðum og þeim var haldið áfram árið 2009 og því var reksturinn í ásættanlegu jafnvægi.
25.5.2010

Ódýr hljóðvistar kreppuráð

Hljóðvistarsvið Mannvits hefur unnið að einstaklega skemmtilegu verkefni nú í vetur. Hugmyndin að verkefninu kviknaði í ljósi kreppuástandsins í þjóðfélaginu og þeirri ósk að leita að ódýrari lausnum, þar sem innlend vinna og efni eru notuð í frekara mæli en áður.
17.5.2010

Kynningar- og leiðbeiningarit um litlar vatnsvirkjanir

Mannvit hefur nú lokið við að uppfæra kynningar- og leiðbeiningarit um undirbúning lítilla vatnsvirkjana. Um er að ræða 2. útgáfu en fyrsta útgáfa kom út 2003.

Uppfærslan snýr fyrst og fremst að breytingum sem orðið hafa á lagaumhverfi. Þar er helst að nefna raforkulög sem tóku gildi í apríl 2003.
10.5.2010

Mannvit á WGC 2010 Bali

Þrír starfsmenn Mannvits voru staddir á Alþjóða jarðhitaráðstefnunni á Bali í Indónesíu, World Geothermal Congress 2010, í lok apríl. Ráðstefnan sem haldin er fimmta hvert ár var fjölmenn en hana sækja jarðhitasérfræðingar, vísindamenn, tæknifræðingar, verkfræðingar og forystumenn á sviði orkumála víða að úr heiminum.
10.5.2010

Hraunhiti í nýjahrauninu á Fimmvörðuhálsi

Gísli Guðmundsson jarðefnafræðingur, Ph.D., og starfsmaður Mannvits slóst í fór með jarðfræðingum frá Háskóla Íslands ásamt tökuliði frá RÚV að gosstöðvum á Fimmvörðuhálsi í lok mars. Tilgangur ferðarinnar var að mæla hita í rennandi hrauni frá eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi.  Hitinn var annars vegar mældur með innrauðri myndavél og hins vegar með hitavír (thermocouple).  Hitavírinn og aflestrartæki eru í eigu Mannvits.
6.5.2010

Fyrsta borun nærri Miskolc

Í dag hefst borun á fyrstu jarðhitaholunni nærri borginni Miskolc í austurhluta Ungverjalands. Miskolc er ein af þremur stærstu borgum landsins með um 200.000 íbúa. Áætlað er að holan verði um 2,3 km að dýpt. Borun holunnar er fyrsti áfangi að því marki að virkja allt að 40 MW af jarðhita til húshitunar á svæðinu. Allar jarðeðlisfræði- og jarðfræðirannóknir  sem og hönnun holunnar og eftirlit með borun hennar er í höndum Mannvits.
4.5.2010

Leiðbeiningar um þjóðvegi í þéttbýli

Í vikunni sem leið komu út leiðbeiningar um þjóðvegi í þéttbýli. Mannvit vann verkefnið í samvinnu við Vegagerðina og Verkís. Með leiðbeiningunum setur Vegagerðin fram helstu forsendur og viðmið sem hafa skal að leiðarljósi við skipulag og hönnun þjóðvega í þéttbýli.
30.4.2010

Kynningar- og athugasemdaferli fyrir framkvæmdir á Norðausturlandi hafið

Alcoa, Þeistareykir ehf, Landsvirkjun og Landsnet hafa undanfarin þrjú ár unnið að mati á umhverfisáhrifum fyrir álver á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjun, Kröfluvirkjun II og háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka.  Í samræmi við úrskurð umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 hafa fyrirtækin jafnframt í sameiningu unnið að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum þessara fjögurra framkvæmda.
18.3.2010

Mannvit og BIM

Á aðalfundi Verkfræðingafélags Íslands 17. mars 2010 hélt Pálína Gísladóttir, sviðsstjóri burðarvirkja hjá Mannviti, kynningu á reynslu Mannvits af upplýsingalíkönum mannvirkja  - BIM (Building Information Model). Mannvit hefur á undanförnum árum unnið talsvert af sinni hönnun í BIM hugbúnaði. Stærstu verkefnin eru Háskólinn í Reykjavík, Harpa við Austurbakka og gagnaver í Reykjanesbæ.
9.3.2010

Mannvit gengur í Jarðhitasamband Kanada og er skráð á lista sambandsins sem hæfur aðili til að framkvæma jarðhitamat samkvæmt staðli.

Í febrúar síðastliðinn gekk Mannvit í jarðhitasamband Kanada (Canadian Geothermal Energy Acossiation –CanGEA). Jafnframt því er Mannvit skráð í „Registrar of Qualified Persons Under the Canadian Geothermal Reporting Code“. Þetta merkir að Mannvit hefur hæfa og reynda sérfræðinga í sínum röðum til að greina frá rannsóknarniðurstöðum, flokka og meta afkastagetu jarðhitasvæða eftir staðli Kanadíska  jarðhitasambandsins (Canadian Geothermal Reporting Code).
22.2.2010

Steinsteypuverðlaunin 2010 - Göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut

Á hinum árlega Steinsteypudegi sem haldinn var s.l. föstudag, afhenti forseti Íslands Steinsteypuverðlaunin 2010 fyrir framúrskarandi steinsteypt mannvirki frá síðustu fimm árum. Alls bárust tilnefningar um 22 mannvirki frá ýmsum aðilum innan byggingageirans.
10.2.2010

Fjölbreytni í forystu

Í maí í fyrra gerðu Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Félag kvenna í atvinnurekstri samstarfssamning um að stefna að því að fjölga konum í forystusveit atvinnulífsins til loka árs 2013 þannig að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40%. Allir stjórnmálaflokkar styðja þennan samning.  Á fjölmennri ráðstefnu á Hótel Nordica í morgun riðu tvö fyrirtæki á vaðið og skrifuðu undir stuðning við samninginn. Það voru Mannvit og Edda útgáfa.
8.2.2010

Umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga - Leiðbeiningar

Út eru komnar leiðbeiningar um umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga sem unnar voru af Mannviti í samvinnu við Umferðarstofu og Vegagerðina með styrk úr rannsóknarsjóði hennar. Leiðbeiningarnar eru hugsaðar sem uppflettirit fyrir starfsmenn sveitarfélaga og aðra sem koma að gerð umferðaröryggisáætlana.
11.1.2010

Spriklandi og Grikklandi

Í nýlega útkomnu fréttablaði grísks viðskiptavinar Mannvits, S&B, er fjallað um AMT/MT mælingarnar sem framkvæmdar voru á Grísku eyjunum Milos og Kimolos í September og Október í haust.

Nánar um mælingarnar hér
16.12.2009

Styrkur til krabbameinssjúkra barna

Sá siður hefur komist á hjá Mannviti að í stað þess að senda út jólakort er áætlað andvirði þeirra afhent sem styrkur til góðgerðafélags eða hjálparsamtaka. Í ár var það Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna sem fékk styrkinn.
12.11.2009

SVA hefur notkun lífdísils í tilraunaskyni

Fimmtudaginn 5. nóvember sl. hófu Strætisvagnar Akureyrar (SVA) notkun lífdísils, í tilraunaskyni, á einn vagna sinna. Lífdísillinn var framleiddur í tilraunaeiningu Mannvits á Akureyri úr notaðri steikingarolíu og -feiti. Lífdísillinn er blandaður í dísilolíu og fyrst um sinn verður notuð 5% blanda að rúmmáli, sk. B5, en stefnt er að því að auka hlutfallið þegar líður á tilraunina.
27.10.2009

GEORG styrkur

Í júní síðastliðnum  hlaut Mannvit hf styrk frá Georg (GEOthermal Research Group) til rannsóknar og þróunar verkefnis sem nefnist   Fóðringarsteypa fyrir háþrýstings- háhitaborholur ( High pressure and high temperature geothermal grouts). Skrifað var undir samning um verkefið í síðustu viku.
 
Dr. Gísli Guðmundsson, starfsmaður Mannvits, er verkefnisstjóri en meðumsækjendur ásamt Mannviti voru:
20.10.2009

Mannvit í samstarf við alþjóðlega verkfræðifyrirtækið Technip

Þróunarverkefni á sviði jarðhitanýtingar í Bandaríkjunum

Verkfræðistofan Mannvit og alþjóðlega verkfræðifyrirtækið Technip hafa undirritað samstarfssamning um þróunarverkefni á sviði jarðhitanýtingar í Bandaríkjunum.
Markmið samstarfsins er að bjóða þeim sem standa að þróunarvinnu á sviði jarðhitanýtingar í Bandaríkjunum alla þjónustu hvað varðar ráðgjöf verkefnastjórnun, rannsóknir, boranir, hönnun og byggingastjórnun við uppbyggingu jarðvarmavirkjana.
16.10.2009

Fyrsta skóflustungan að metanólverksmiðju

Fyrsta skóflustungan að metanólverksmiðju í Svartsengi verður tekin á morgun. Þetta er fyrsta verksmiðja sinnar tegundar í heiminum og mun Mannvit sjá um verkefnastjórnun og hönnun verksmiðjunnar.
6.10.2009

Mannvit í AMT og MT mælingum á Grikklandi

Þessa dagana er Mannvit að kortleggja jarðhitasvæði undir grísku eyjunum Milos og Kimolos, ásamt undirverktaka sínum, KMS Technologies. Kortlagningin fer fram með AMT og MT viðnámsmælingum. Mælingarnar eru liður í grunnrannsóknum á svæðinu. MT stendur fyrir magnetotellurics og AMT fyrir audio-magnetotellurics.
5.10.2009

Rannsóknarstofa Mannvits fær tvo styrki úr sjóði Íbúðalánasjóðs

Nú í september samþykkti stjórn Íbúðalánasjóðs, ÍLS, að veita 19 styrki til tækninýjunga og annarra umbóta í byggingariðnaði, samtals að fjárhæð 19,3 millj. kr. Rannsóknarstofa Mannvits hlaut tvo styrki en alls bárust 53 styrkumsóknir. Verkefnin sem hlutu styrk eru eftirfarandi:
2.10.2009

Mannvit á ungversku

Mannvit státar nú af heimasíðu á Ungversku þar sem fyrirtækið er kynnt á því ylhýra máli http://www.mannvit.hu/ .  Mannvit opnaði starfstöð í Budapest fyrir um ári síðan.  Þar eru tólf  fastir starfsmenn, þar af einn íslenskur.  Auk þess hafa starfsmenn Mannvits frá Íslandi, sem koma að verkefnum í Ungverjalandi haft starfsaðstöðu á skrifstofunni í Budapest.
22.9.2009

ÁFRAM SELFOSS

Laugardaginn 19 september varð Selfoss meistari 1. deildar karla í knattspyrnu.  Þeir luku mótinu með því að leggja sjálfa Skagamenn 4:2.   

Næsta sumar munu Selfyssingar spila á nýjum grasvelli en síðastliðinn vetur og í sumar hefur verið unnið að endunýjun aðalvallarins á íþróttasvæðinu. 
18.9.2009

Mannvit ráðgjafi við mótun loftslags- og loftgæðastefnu Reykjavíkurborgar

Reykjavík er fyrst sveitarfélaga á Íslandi til að setja fram sérstaka stefnu í loftslags- og loftgæðamálum. Stefnan er eitt af Grænu skrefunum í Reykjavík og meginmarkmið hennar er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og  bæta loftgæðin í borginni.
17.9.2009

Jarðhitaboranir í Ungverjalandi bera góðan árangur

Undanfarin þrjú ár hefur verkfræðistofan Mannvit unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði jarðfræði og jarðeðlisfræði vegna jarðhitanýtingar í Ungverjalandi. Verkefnin eru unnin fyrir ungverska einkafyrirtækið PannErgy sem áætlar framleiðslu á grænni orku til húshitunar á a.m.k. 70.000 heimilum víðs vegar í Ungverjalandi og hefur í því sambandi gert samstarfssamning við um 30 sveitarfélög og stofnað með þeim sameiginleg félög um rekstur hitaveitna. Að auki er stefnt að framleiðslu rafmagns með jarðvarma. Áætlaðar heildarfjárfestingar PannErgy á þessu sviði nema á bilinu 350 til 500 milljóna evra.
14.9.2009

Mannvit flytur af Laugavegi 178

Frá og með deginum í dag er Mannvit með skrifstofur á fjórum stöðum í Reykjavík: Grensásvegi 1, Grensásvegi 11 , Skeifunni 3, og Ármúla 42.
Aðalskrifstofa Mannvits verður áfram á Grensásvegi 1.
Hér er kort sem sýnir staðsetningu skrifstofa Mannvits í Reykjavík. Hægt er að fá nánari upplýsingar í síma 422 3000 og á www.mannvit.is,
11.9.2009

Sumarmótaröð Golfklúbbs Mannvits

Lokamót golfklúbbs Mannvits var haldið 09.09. á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Að loknu móti, sem ca. 40 manns tóku þátt í,  fór fram lokahóf með glæsilegum kvöldverði og verðlaunarafhendingu í bæði karla og kvenna flokki.  Þess ber að nefna að EKKI náði neinn að fara holu í höggi að þessu sinni en tveir spilarar náðu þeim glæsilega árangri á Vífilsstaðavelli fyrir stuttu.
Til að geta unnið til verðlauna, þarf leikmaður að hafa tekið þátt í minnst fjórum mótum yfir sumarið. Samanlagður punktafjöldi úr þremur bestu mótunum gildir til verðlauna.
4.9.2009

Sýningin Reykjanes 2009 opnuð í dag

Sýningin Reykjanes 2009 verður opnuð í dag í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ. Sýningin verður opin dagana 4.-6. september í tengslum við 10 ára afmæli Ljósanætur. Sýningin er haldin undir yfirskriftinni „þekking, orka, tækifæri“ og þar verður kynnt margt það helsta sem Reykjanes hefur upp á að bjóða í atvinnulífi, menningu og þjónustu.

Mannvit er meðal 50 sýnenda sem eru af öllum stærðum og gerðum munu kynna starfsemi sína, vörur og þjónustu á Reykjanesi 2009 og þar af eru mörg stærstu fyrirtækin á svæðinu. Má þar til að mynda nefna samstarfsaðila sýningarinnar;
25.8.2009

Jarðgerðarstöð í Eyjarfirði gangsett

Föstudaginn 21. ágúst var jarðgerðarstöð Moltu ehf. formlega opnuð. Jarðgerðarstöðin er stærsta jarðgerðstöð sinnar tegundar í Evrópu og er ætlað að taka á móti lífrænum úrgangi af Eyjafjarðarsvæðinu og úr Þingeyjarsýslu. Stöðin getur annað 10 – 13 þúsund tonnum af lífrænum úrgangi á ársgrundvelli. Kostnaður við verkefnið í heild nemur um 500 milljónum króna.
12.8.2009

Netþjónabú Verne Holdings

Vinna við hönnun gagnavers Verne Holdings á gamla herstöðvarsvæðinu á Keflavíkur flugvelli er vel á veg komin. Mannvit sér um alla verkfræðihönnun á gagnverinu ásamt því að koma að prófunum og uppkeyrslu á búnaði.
15.7.2009

Íþróttaleikvangur á Akureyri

Fimmtudaginn 9. júli síðastliðinn hófst 26. Landsmót UMFÍ á nýjum íþróttaleikvangi á svæði íþróttafélagsins Þórs á Akureyri. Öll verkfræðileg hönnun svæðisins var í höndum Mannvits, sem sá um hönnun á frjálsíþrótta- og fótboltavöllum ásamt því að hanna stúku sem tekur um 1000 manns í sæti.

15.7.2009

Golfmót Mannvits

Boðsmót Mannvits var haldið 2. júlí 2009 á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði og voru rúmlega 100 þátttakendur skráðir til leiks.

19.6.2009

Alþjóðlegt alkalísetur

Mannvit hefur opnað nýtt alþjóðlegt setur sem er helgað prófunum og rannsóknum á alkalívirkni, sjá http://www.mannvit.com/

Markmiðið er að marka rannsóknarstofu Mannvits sess sem alþjóðlegum þekkingar- og prófunaraðila varðandi alkalívirkni en kunnáttu í því að hanna endingagóða steypu m.t.t. alkalívirkni er ennþá ábótavant víða um heim. Setrinu er ætlað að miðla þekkingu, veita ráðgjöf og kennslu á innlendum og alþjóðlegum markaði.
15.6.2009

Stjórnunarkerfi Mannvits vottað samkvæmt nýrri útgáfu af ISO 9001 stjórnunarstaðli

Fimmtudaginn 11. júní var Mannvit afhent skírteini sem staðfesting um að fyrirtækið starfræki vottað gæðastjórnunarkerfi samkvæmt kröfum ISO 9001:2008 gæðastjórnunarstaðalsins.
Vottunin nær til allrar starfsemi og starfsstöðva fyrirtækisins. Vottunin er faggild og er vottunaraðilinn British Standard Instistution (BSI).
29.5.2009

Mannvit hjólaði í vinnuna

Nú er heilsu- og hvatningarátakinu „Hjólað í vinnuna“ lokið. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir átakinu en meginmarkmið þess er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.

Mannvit sigraði í sínum stærðarflokki í keppni um fjölda þátttökudaga og varð í öðru sæti í keppni um flesta kílómetra.
28.5.2009

Endurnýtanlegir orkugjafar

Með Morgunblaðinu í morgun fylgdi aukablað um nýja orkugjafa. Í blaðinu er fjallað um þau orkumál og þau verkefni sem unnið er að í þróun og framleiðslu á nýjum orkugjöfum innanlands sem draga úr þörf fyrir innflutt eldsneyti.
Mannvit hefur komið að fjölmörgum þessara verkefna og má sjá umfjöllun um okkur í blaðinu ásamt heilsíðu auglýsingu. Þar er meðal annars sagt frá samstarfsverkefni okkar við SORPU, LBHÍ og OR um framleiðslu rafmagns og metanóls úr mykju.
20.5.2009

Ársskýrsla Mannvits 2008

Ársskýrsla Mannvits 2008 er komin út og má nálgast í pdf hér á vefnum. Miðað við árferði var rekstur félagsins viðunandi. Nú hefur fyrirtækið starfað í tæplega eitt og hálft ár undir merkjum Mannvits og eru starfsmenn og stjórnendur sammála um að sameiningin hafi verið gæfuspor fyrir alla aðila.
11.5.2009

Fyrirmyndar fyrirtæki ársins 2009

Mannvit varð í fjórða sæti í vali VR á fyrirtæki ársins 2009. Á fjórða hundrað fyrirtæki eru á listanum yfir Fyrirtæki ársins og fá þau fyrirtæki sem eru í tuttugu efstu sætunum þennan titil. Auk þess fá fyrirtækin merki sem þau geta notað í kynningarefni og auglýsingar næstu tólf mánuði. Starfsmenn og stjórnendur eru ákaflega stolt af því að vera fyrirmyndar fyrirtæki VR eins og síðastliðinn fimm ár.
29.4.2009

Vatnsaflsvirkjanir í Chile

Á síðasta ársfjórðungi 2008 vann Mannvit að hagkvæmniathugun tveggja vatnsaflsvirkjana í Chile.  Verkið var unnið fyrir HydroChile í samvinnu við heimamenn í Santiago.  Einn starfsmaður Mannvits var staðsettur í Santiago í tæpan mánuð við lausn verkefnisins, en einnig komu starfsmenn í Reykjavík að verkinu.  Hlutur Mannvits er um 25% af verkefninu.
22.4.2009

Sótt um lóð undir olíubirgðastöð á Reyðarfirði

Mannvit hefur sótt um lóð fyrir 244.000 rúmmetra olíubirgðastöð á Reyðarfirði, fyrir hönd Atlantic Tank Storage og var fjallað um umsóknina í umhverfisnefnd Fjarðarbyggðar í dag. Birgðastöðin er hönnuð fyrir geymslu á almennum olíuvörum þ.m.t.  bensíni, gasolíu og jarðolíu og er gert ráð fyrir að í stöðinni verði um 13 geymar. Áætlaður byggingartími er 15-18 mánuðir og er gert ráð fyrir 120 til 150 ársverkum við byggingu stöðvarinnar.
15.4.2009

Verðbanki Mannvits

Hugmynd að merki Mannvits er fengin frá mynd í bók  „De divina proportione“ af margflötungi (Rhombicuboctahedron)Ný útgáfa (á verðlagi í mars 2009) af verðbanka Mannvits fyrir húsbyggingar og þéttbýlistækni hefur litið dagsins ljós. Hægt er að fá hann keyptan í eftirfarandi hlutum:

Húsbyggingar, yfir 2500 grunn- og einingarverð.
Þéttbýlisbanki, yfir 700 grunn og einingarverð

Einnig er hægt að kaupa ákveðna kafla úr húsbyggingum;
17.3.2009

Forseti Íslands í heimsókn hjá Mannviti

Forseti Íslands heimsótti Mannvit á dögunum. Forsetinn hefur sýnt starfsemi Mannvits mikinn áhuga, sérstaklega á sviði jarðhita, nýtingu á vistvænni orku almennt og útflutningi á þeirri þekkingu.
Tekið var á móti forsetanum að starfsstöðinni á Laugarvegi 178 og þar snæddi hann hádegisverð  með starfsmönnum.
3.3.2009

Steinsteypudagurinn 2009