innri vefur
Fréttin öll
11.4.2008

Mannvit byggir höfuðstöðvar á Grensásvegi 1

Framkvæmdir við byggingu höfuðstöðva Mannvits við Grensásveg ganga vel og var fyrsta steypa fyrir nokkrum vikum þegar lyftuhús var steypt.
Nú er verið að vinna við járnabendingu á botnplötu og er það mikið verk því botnplatan mun verða tæpur meter á þykkt.

Ráðgert er að öll starfsemi Mannvits í Reykjavík verði sameinuð á Grensásvegi 1 í september 2009 og að framkvæmdum við 1. áfanga verði að fullu lokið um mitt ár 2010. Þegar 1. áfanga er lokið verður pláss fyrir um 500 starfsmenn að Grensásvegi 1 í um 8.300 m2, þar af  um 6.600 m2 í nýbyggingu.

Í deiliskipulagi lóðar er gert ráð fyrir að í framtíðinn verði hægt að stækka bygginguna enn frekar í nokkrum áföngum, núverandi skrifstofubyggingar víki og byggð verði ný hús sem rúma allt að 900-1000 starfsmenn.