Fréttin öll
11.4.2008
VGK-Hönnun og Rafhönnun sameinast undir merkjum Mannvits

Hluthafar VGK-Hönnunar hf. og Rafhönnunar hf. samþykktu formlega sameiningu félaganna á hluthafafundi 10. apríl 2008 og mun nýtt félag heita Mannvit hf.
Forstjóri Mannvits verður Eyjólfur Árni Rafnsson en aðstoðarforstjórar þeir Runólfur Maack sem mun hafa umsjón með erlendri starfsemi og Skapti Valsson sem verður með umsjón með innlendri starfsemi.
Með sameiningunni verður til alhliða ráðgjafar- og þekkingarfyrirtæki á sviði verkfræði og tækni.
Samruninn er til sóknar en meginmarkmið félagsins er að reka öflugt verkfræðifyrirtæki á alþjóðlegum markaði og að halda áfram að veita viðskiptavinum fyrirtækisins úrvals þjónustu.
Það er von okkar að viðskiptavinir og birgjar taki sameiningunni vel og að hún verði til þess fallin að efla það traust sem félögin hafa notið um áratuga skeið.