innri vefur
Fréttin öll
22.4.2008

Steypudagur á Grensásvegi 1

Laugardaginn 19. apríl var fyrsta steypa steypt að nýjum höfuðstöðvum Mannvits. Steyptir voru 1.100 rúmmetrar. Það þurfti 138 steypubíla til verksins sem hófst klukkan sjö að morgni laugardags og var lokið klukkan tvö eftir hádegi.

Steypt var 1 metra þykk plata en tilgangurinn með að hafa plötuna svona þykka er að veita mótþunga gegn uppfloti hússins en neðsti kjallarinn er neðan við grunnvatnsborð. Botnplatan er jafnframt undirstöður fyrir veggsúlur.