Fréttin öll
4.6.2008
CE-vottun á steypumöl frá Vatnsskarðsnámu Alexanders Ólafssonar ehf
|
Alexander Ólafsson ehf. sem rekur malarvinnslu í Vatnsskarðsnámu hefur formlega verið afhent viðurkenningarskjal gæðavottunarstofnunar British Standard Institute (BSI), um að steinefni til steypugerðar úr Vatnsskarðsnámu uppfylli kröfur um efnisgæði og framleiðslueftirlit samkvæmt evrópska steinefnastaðlinum ÍST EN 12620. Vottunin veitir fyrirtækinu leyfi til að CE-merkja steypumöl og -sand, fyrst íslenskra fyrirtækja.
Aðild Íslands að Evrópska Efnahagssvæðinu hefur m.a. í för með sér samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins um byggingarvörur að flestar byggingarvörur, þar á meðal steinefni til steypugerðar, þurfa að uppfylla kröfur um framleiðslueftirlit, staðfest með CE-merkingu. Með CE-vottun á steinefni til steypugerðar frá Vatnsskarðsnámu staðfestir British Standard Institute að Alexander Ólafsson ehf. uppfyllir þessar kröfur. Verkfræðistofan MANNVIT veitti ráðgjöf við innleiðingu á framleiðslueftirlitinu og voru tilheyrandi efnisprófanir framkvæmdar á rannsóknarstofu MANNVITS. |

Árni H. Kristinsson, fulltrúi BSI á Íslandi, afhenti Ellert Alexanderssyni framkvæmdastjóra Alexanders Ólafssonar ehf. skjalið fyrir hönd BSI, að viðstöddum Alexander Alexanderssyni hjá Alexander Ólafssyni ehf. og Karsten Iversen, verkfræðistofunni MANNVIT |
| |
|