innri vefur
Fréttin öll
29.8.2008

Mannvit á fimm stöðum í borginni


Framkvæmdir eru nú í fullum gangi við stækkun höfuðstöðva Mannvits  sem  hefur leitt til þess að starfsemi fyrirtækisins hefur verið flutt til á meðan á framkvæmdunum stendur. Þannig hefur til að mynda aðalmóttaka Mannvits og framkvæmdastjórn verið flutt á Laugaveg 178 og viljum við sérstaklega vekja athygli gesta á þeirri breytingu.

Mannvit er nú með skrifstofur á fimm stöðum í Reykjavík: Á Laugavegi 178, Grensásvegi 1, Grensásvegi 11 , Skeifunni 3, og Ármúla 42. Þeim sem eiga erindi við Mannvit er bent á að skoða  kort hér neðar á síðunni til að glöggva sig á hvar sviðið sem á að heimsækja sé að finna,  einnig er hægt að fá nánari upplýsingar í síma 422 3000.

Stefnt er að því að fyrsti áfangi nýrra höfuðstöðva Mannvits að Grensásvegi 1 verði teknar í notkun á síðari hluta árs 2009 og að öll starfsemi fyrirtækisins verði komin undir eitt þak 2010.