innri vefur
Fréttin öll
5.9.2008

Opnun Metangasstöðvar N1 á Bíldshöfða


Tímamót urðu í notkun metans sem bifreiðaeldsneytis 7. ágúst síðastliðinn. Þá var opnuð ný afgreiðslustöð  fyrir metangas N1 á Bíldshöfða. Á sama tíma var tekin í notkun gaslögn frá Álfsnesi að Bíldshöfða sem Mannvit sá um hönnun á. Metanið er framleitt í Álfsnesi í hreinsistöð sem Mannvit hannaði fyrir hauggas sem verður til í urðunarstaðnum sem þar er. Sorpa á og rekur hreinsistöðina í Álfsnesi. Orkuveita Reykjavíkur á gaslögnina, sem er ein af veitum OR og N1 á og rekur afgreiðslustöð á Bíldshöfða.  Saman eiga þessi fyrirtæki Metan h.f. sem sér um markaðsstarf og kynningu á nýtingu metans. Mikil fjölgun hefur orðið á fjölda ökutækja sem nýta metan að hluta eða öllu leiti. Búast má við að almenningur fari að leita sér að vistvænni ferðamáta í framtíðinni og því er búist við að ökutækjum sem nýta metan eigi eftir að fjölga sem og afgreiðslustöðvum.  

Síðastliðið ár hefur staðið yfir hönnun og bygging á nýrri bensínstöð N1 við Bíldshöfða í Reykjavík. Mannvit sá um hönnun á lögnum og loftræstingu í bæði húsin sem hafa verið reist þar. Einnig sá Mannvit um hönnun, innkaup, umsjón og eftirlit með nýju metanafgreiðslustöðinni.   Metanið er flutt um nýju gaslögnina, sem er 10 km löng. Lögnin er  niðurgrafin að hluta og hluti hennar liggur  á sjávarbotni. Í afgreiðslustöðinni  er metangasinu frá lögninni þjappað úr 8 bar í 250 bar og fer á þeim þrýstingi á bílana með sérstökum afgreiðslubúnaði.  Geymslupláss fyrir metangas á Bíldshöfðanum er um 2000 Nm³, það magn dugar 10 strætisvögnum í einn dag.Tvær gasþjöppur er nú í stöðinni en verða þrjár í framtíðinni. Gaskerfið er allt hannað hjá Mannviti ásamt þeim hluta rafkerfis sem snýr að samskiptum milli stjórnskápa gasþjappanna og öryggismálum eins og gaslekaskynjun. Í dag ganga allir sorpbílar í Reykjavík á metani, 2 strætisvagnar, 2 vörubílar og um 100 smábílar. Mannvit á einn metanbíl og hefur átt slíkan bíl frá því að metan var fyrst notað á bíla á Íslandi eða frá árinu 2000. Metanið er alíslenskt eldsneyti, unnið úr reykvísku sorpi og verðið er nú um 50% af verði bensíns.  

Fyrir einkennilega tilviljun var fyrsti bíllinn sem fékk metan úr nýrri stöð með einkanúmerið METAN1, merktur Mannviti.