innri vefur
Fréttin öll
30.9.2008

Flutningar fyrir norðan

Starfsstöðin á Akureyri flutti á fyrstu hæðina að Strandgötu 31 nú á haustdögum en starfsstöðin hefur verið til húsa að Strandgötu 29. Það er mikil saga á bakvið núverandi húsnæði, meðal annars var blaðið Dagur (Framsóknarblaðið) skrifað og prentað hér á árum áður.

Starfssmönnum hefur fjölgað á undanförnum árum og mánuðum og var orðið ansi þröngt um mannskapinn á gamla staðnum. Í tilefni af fluttningunum var viðskiptavinum boðið til móttöku á starfsstöðinni þar sem starfsemi Mannvits var kynnt og boðið var upp á léttar veitingar.

Í sumar var rannsóknarstofa sett á laggirnar í tengslum við þau fjölmörgu rannsóknarverkefni sem unnin eru á Akureyri. Meðal rannsóknarverkefna má nefna efnatilraunir og rannsóknir á styrk og endingu jarðefna og steinsteypu.

Næstkomandi sumar verður unnið áfram fyrir Colas við rannsóknir á malbiki vegna lengingar á flugbrautinni og eins á malbiki í Héðinsfjarðargöngin.  Á efnasviðinu verður í október byrjað að gera tilraunir með framleiðslu á lífdísil.