Fréttin öll
20.10.2008
Tvöföld Reykjanesbraut
Þann 19. október opnaði samgönguráðherra, Kristján R. Möller, seinni áfanga að

tvöföldun Reykjanesbrautar frá Hafnarfirði til Reykjanesbæjar. Þessum merka áfanga var fagnað með formlegum hætti í sal Fjölbrautaskóla Suðunesja.
Tvöföldun Reykjanesbrautar hefur lengi verið í vinnslu. Árið 2004 var fyrri áfangi tvöföldunar, um 12,1 km frá bæjarmörkum Voga og Hafnarfjarðar að Strandarheiði, opnaður. Seinni áfanginn er frá Strandarheiði til Njarðvíkur eða um 12,5 km.
Mannvit vann frumdrög og umhverfismat fyrir framkvæmdina á árunum 1998 – 2000. Í seinni hluta framkvæmdanna sá Mannvit um allt framkvæmdaeftirlit fyrir Vegagerðina. Ein ástæða þess að framkvæmdirnar tóku þetta langan tíma er að verktakinn sem hóf verkið lenti í fjárhagsvandræðum og því þurfti að fara með framkvæmdirnar í endurútboð í byrjun árs 2008.