Fréttin öll
23.10.2008
Opnun starfsstöðvar í Búdapest
Mannvit verkfræðistofa hefur opnað skrifstofu í Búdapest í Ungverjalandi. Í tilefni opnunarinnar efndi
Mannvit til ráðstefnu ytra undir yfirskriftinni „Græn orka“ þar sem fjallað var um nýjungar og tækifæri í orkumálum fyrir sveitarfélög og fyrirtæki í Ungverjalandi. Jafnframt voru kynnt þau verkefni sem Mannvit hefur unnið að á sviði jarðhitanýtingar í Ungverjalandi undanfarin tvö ár.
Undanfarin misseri hefur Mannvit í auknum mæli litið til stærri markaða. Markmiðið er að tryggja stöðugan rekstur, dreifa áhættu og viðhalda góðum vexti. Sókn erlendis verður áfram ofarlega á blaði á komandi árum en starfsemi Mannvits í Mið-Evrópu hefur verið í stöðugum vexti vegna aukinna jarðvarmaverkefna, ekki síst Ungverjalandi og Þýskalandi.
Runólfur Maack, aðstoðarforstjóri Mannvits og yfirmaður erlendrar starfsemi fyrirtækisins, segir að það hefði legið beint við fyrir Mannvit að hefja hefðbundna ráðgjafarstarfsemi á M-Evrópumarkaði í Búdapest. „Ungverjaland hefur mikla möguleika á nýtingu jarðhita og nú loks hefur orðið þar ákveðin vakning til að hagnýta hann.”