innri vefur
Fréttin öll
8.12.2008

Mannvit hlýtur viðurkenningu

Allt frá árinu 1990 hefur Lagnafélag Íslands veitt viðurkenningar fyrir lagnaverk í nýbyggingu á Íslandi, er þykir framúrskarandi í hönnun og uppsetningu. Tilgangur viðurkenninganna er að efla gæðavitund meðal þeirra aðila sem starfa á þessum vettvangi, efla þróun í lagnamálum með bættum vinnubrögðum, vali á lagnaleiðum og lagnaefnum. Síðast en ekki síst er viðurkenningunum ætlað að vera hönnuðum og iðnaðarmönnum hvatning til að afla sér aukinnar menntunar á sviði lagnamála.


Lagnafélag Íslands veitti viðurkenningar fyrir „Lofsvert lagnaverk 2007“ í húsakynnum BYKO að Kauptúni 6 í Garðabæ þann 27. Nóv. síðastliðinn. Lagna- og lofræstisvið Mannvits fékk viðurkenningu  fyrir hönnun á lögnum og loftræstingu í BYKO-húsinu að Kauptúni 6. Heiðar Jónsson tók við viðurkenningunni fyrir hönd Mannvits, en hann var aðalhönnuður verksins. Hönnun  stjórnkerfa lagna- og loftræstikerfa hlaut einnig viðurkenningu. Aðalhönnuður á þeim kerfum var Sigurður G. Símonarson, sviðsstjóri stjórnkerfa hjá Mannviti . Verslun BYKO að Kauptúni 6 er stærsta byggingarvöruverslun landsins eða  um 13.000 m2, nú er u.þ.b eitt ár frá opnun hennar.


Í áliti viðurkenningarnefndar Lagnafélags Íslands v/Kauptúns 6 segir m.a:
Öll gerð og frágangur lagna- og loftræstikerfa í nýju verslunarhúsi BYKO er til mikillar fyrirmyndar. Sérstaka athygli vekur fyrirkomulag tæknirýma þar sem séð er fyrir góðu aðgengi að tækjum og búnaði í húsinu, handverk iðnaðarmanna er allt til fyrirmyndar.“