Fréttin öll
9.12.2008
Malbiksrannsóknir á starfsstöð Mannvits á Akureyri
Framkvæmdir við lengingu flugbrautar Akureyrarflugvallar hófust síðastliðið sumar og er ráðgert að klára

þær í júní 2009. Verður flugbrautin lengd í báða enda og gamli hlutinn réttur af. Eru þessar framkvæmdir ásamt tilvonandi stækkun flugstöðvarinnar liður í að bæta aðstöðu á vellinum með tilliti til millilandaflugs. Hlaðbær-Colas sér um lagningu malbiks, en nýopnuð rannsóknarstofa Mannvits á Akureyri sér um gæðaeftirlit á malbikinu. Gæðakröfur eru af áður óþekktri stærðargráðu og má segja að framleiðslan sé í gjörgæslu á meðan verkinu stendur. Fylgst er með bikinnihaldi, kornastærðardreifingu, rúmþyngdum, skriði og festu.
Sýni eru tekin í malbikunarstöðvunum þremur á 500 tonna fresti og einnig eru skoðaðir borkjarnar af flugbrautinni. Stöðugt samband er milli rannsóknarstofunnar og blöndunarstjóranna meðan framleiðsla er í gangi en þeir þurfa eins ferskar niðurstöður og mögulegt er. Tveir starfsmenn sjá um rannsóknirnar og má segja að þeir hafi í nógu að snúast.
Nú þegar er ljóst að Mannvit mun sjá um gæðaeftirlit með tveimur stórum malbiksframkvæmdum næsta sumar á vegum Hlaðbæjar-Colas, þ.e. malbikun Héðinsfjarðarganga og framhald á verkinu á Akureyrarflugvelli. Auk þess er fljótt að spyrjast út að á Akureyri sé nú rannsóknarstofa og hafa verið að koma inn malbikssýni frá verktökum á svæðinu og einnig hafa verið gerðar kornastærðagreiningar fyrir nýjan frjálsíþróttavöll í bænum. Það er von okkar að með bættri þjónustu verði til rekstrargrundvöllur fyrir rannsóknarstofu á Akureyri en slíkur rekstur hefur hingað til aðeins verið bundin við Höfuðborgarsvæðið.