Fréttin öll
17.12.2008
MPM nemendur í heimsókn
Föstudaginn 12. desember fékk Mannvit góða gesti í heimsókn þegar nemendur í MPM námi Háskóla Íslands

litu inn og fræddust um starfsemi fyrirtækisins. MPM er meistaranám í verkefnastjórnun sem hefur verið kennt við verkfræðideild HÍ undanfarin misseri. Heimsóknin í Mannvit er hluti af námi nemendanna og fengu þau innsýn í hvernig verkefnastjórnun er notuð í praksís.
Tryggvi Jónsson kynnti starfsemi Mannvits og sýndi hvernig gæðakerfið er sett upp og hvernig það virkar við dagleg störf verkefnastjóra. Þá sögðu Óðinn Albertsson og Helgi Gunnar Vignisson frá uppbyggingu nýs verkefnastjórnunarkerfis Mannvits sem hefur verið í þróun á undanförnum mánuðum. Einar Ragnarsson, framkvæmdastjóri Framkvæmda- og rannsóknarkjarna, fór yfir umhverfis- og öryggismál og hvað verkefnastjóri þarf að hafa í huga varðandi þau, ekki síst meðan verkefni eru enn á hönnunarstigi. Í lokin fór Kristinn Eiríksson sem einnig starfar hjá Mannviti yfir hvernig MPM námið hefur nýst honum við störf en hann er einn af nokkrum verkefnastjórum við Kárahnjúkaverkefnið. Þess má geta að þeir Kristinn, Óðinn og Helgi Gunnar útskrifuðust allir úr MPM náminu síðastliðið vor. Allt fór þetta fram á léttum nótum á meðan nemendur renndu niður sætabrauði og kaffi.