Fréttin öll
12.1.2009
Jarðboranir hefjast í Ungverjalandi
Í suðvesturhluta Ungverjalands hefur Mannvit hafið undirbúning borunar á tveimur jarðhitaholum nærri

bæjum sem heita Szentlörinc og Tamási. Holan í Szentlörinc verður um 1800 metra djúp og 2500 metrar í Tamási. Vinna er hafin við vega- og borpallagerð. Borun í Szentlörinc hefst um miðjan febrúar og í lok mars í Tamási
Markmiðið með þessum borunum er að afla vatns fyrir hitaveitur.
Hlutverk Mannvits felst m.a í jarð- og jarðeðlisfræðilegum rannsóknum. Markmið þeirra rannsókna var að velja borstæði. Einnig annast Mannvit hönnun borholanna ásamt skilgreiningu á tæknilegri útfærslu borunarinnar sem og allri stjórnun og eftirliti með boruninni og prófunum. Vatnaskil sér um forðafræðiathuganir þ.e. líkanagerð af jarðhitageyminum.
Verkið er unnið fyrir PannErgy Nyrt. sem er ungverskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í endurnýjanlegri orku. Samstarfsaðilar eru Aquaplus sem er borfyrirtæki, GEO-Log sem sérhæfir sig í jarðeðlisfræðilegum mælingum og Fömterv sem er ungversk verkfræðistofa af svipaðri stærð og Mannvit hf, en milli stofanna og Mannvit kft hafa verið gerðir alhliða samstarfssamningar
Mannvit opnaði skrifstofu í Búdapest í október 2008 og eru starfsmenn þar nú ellefu. Mannvit hefur unnið að verkefni um jarðhitanýtingu í Ungverjalandi í nær tvö ár en miklir möguleikar eru á nýtingu jarðhita í þar um slóðir.