Fréttin öll
13.2.2009
Alþjóðlegur rannsóknarklasi í jarðhita (GEORG)
Stjórn Rannsóknasjóðs hefur úthlutað styrkjum úr nýrri markáætlun Vísinda- og tækniráðs

(öndvegissetur og klasar). Mannvit er hluti af hóp, ásamt öllum helstu aðilum sem um jarðhita fjalla á Íslandi, sem fékk styrk úr þessari nýju markaðsáætlun Rannís. Styrkurinn er til verkefnis sem kallast Alþjóðlegur rannsóknarklasi í jarðhita og nemur hann allt að 7o millj. kr. og er til sjö ára.
Verkefnið í hnotskurn er á þessa leið:
Hagkerfi heimsins byggir á notkun jarðefnaeldsneytis sem er bæði takmörkuð auðlind og stuðlar að losun gróðurhúsalofttegunda, sem talið er að valdi breytingum á loftslagi jarðar. Til að vinna gegn loftslagsbreytingum þarf að finna aðra orkuvalkosti. Engin ein aðferð mun leysa notkun jarðefnaeldsneytis af hólmi heldur þarf að þróa safn valkosta sem beita má ýmist hnattrænt eða staðbundið eftir því sem við á. Í verkefninu er lögð fram áætlun um að auka rannsóknir og þróun á sjálfbærri jarðhitaorku og stuðla þannig að því að jarðhiti verði mikilvægt framlag til að minnka notkunar jarðefnaeldsneytis. Því er lögð til stofnun alþjóðlegs rannsóknaklasa í jarðhita (GEOthermal Research Group (GEORG)). Myndun rannsóknarklasans miðar að því að byggja brýr milli aðila á jarðhitasviðinu og mynda þannig sterkt afl sem mun leiða til þess að vísindalegar og tæknilegar hindranir verða yfirstignar og leiða til fjölgunar sérfræðinga og skjótra framfara í jarðhitarannsóknum, verkfræði og hönnun. Framtíðarsýn klasans er að verða leiðandi afl í alþjóðlegum jarðhitarannsóknum.
Aðalmarkmið klasans eru að:
• Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu með því að þróa sjálfbæra nýtingu á jarðhitaauðlindinni.
• Gera Ísland að fyrirmynd sem nánast orkusjálfbært þjóðfélag með nær enga losun gróðurhúsalofttegunda.
• Skapa grundvöll fyrir nýsköpun og útrás íslenskra fyrirtækja í jarðhita og menntun, bæði fyrir þátttakendur klasans og aðra að skapa frjótt umhverfi innanlands með alþjóðlegum tengingum á þessu sviði.