innri vefur
Fréttin öll
27.10.2009

GEORG styrkur

Í júní síðastliðnum  hlaut Mannvit hf styrk frá Georg (GEOthermal Research Group) til rannsóknar og þróunar verkefnis sem nefnist   Fóðringarsteypa fyrir háþrýstings- háhitaborholur ( High pressure and high temperature geothermal grouts). Skrifað var undir samning um verkefnið í síðustu viku.
 
Dr. Gísli Guðmundsson, starfsmaður Mannvits, er verkefnisstjóri en meðumsækjendur ásamt Mannviti voru:
•    Háskólinn í Reykjavík, professor Ólafur Wallevik
•    Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Stefan Kubens
•    ÍSOR, Sverrir Þórhallsson

Styrkurinn er úr fyrstu árlegri opinni úthlutun innan verkefnisins GEORG (GEOthermal Research Group), öndvegisverkefnis í umsjón RANNÍS.

Verkefnið er eitt af 10 verkefnum sem hlutu stuðning GEORG  en alls bárust 33 umsóknir.

Markmiðið með verkefninu er að þróa steypu til fóðringar á djúpum jarðhitaborholum þar sem hátt hitastig og mikill þrýstingur ríkir, en sú verður reyndin í s.k. djúpborunarverkefni íslensku orkufyrirtækjanna.

Í verkefninu verður notað nýtt tæki, s.k. RheoMicroscope, en með því má mæla flotfræðilega eiginleika efnis við háan hita og  þrýsting allt að 400 bar, sem samsvarar 4000 metra vatnssúlu eða þrýstingi í u.þ.b. 2,4 km djúpri borholu.

RANNÍS veitti Nýsköpunarmiðstöð fyrr á árinu styrk  til kaupa á tækinu. Mannvit hf og Háskólinn í Reykjavík lögðu einnig fram fé til kaupanna, en tækið  er staðsett  á Nýsköpunarmiðstöð.