9.7.2010

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Pál Kovács, vararáðuneytisstjóri
þróunarmálaráðuneytis Ungverjalands, og Márk Győrvári, borgarstjóri
Szentlőrinc, lögðu í gær hornstein að hitaveitu sem er hönnuð af
verkfræðistofunni Mannviti fyrir ungverska einkafyrirtækið PannErgy.
7.7.2010

Mannvit hlaut á dögunum styrk frá Umhverfis- og orkurannsóknarsjóði
Orkuveitur Reykjavíkur (UOOR). Verkefnisstjóri er Ari Ingimundarson
vélaverkfræðingur hjá Mannviti. Styrkurinn er til að vinna að verkefni
sem kallast – Hagkvæmari nýting gufu í Hellisheiðarvirkjun. Verkefnið er
unnið í samvinnu jarðvarmavirkjanasviðs og upplýsingatæknikjarna
Mannvits.
30.6.2010

Mannvit fékk á dögunum styrk úr Orkusjóði til verkefnisins
„Tilraunaframleiðsla á eldsneyti úr lífmassa“ og nemur 3,2 m.kr.
Verkefnið er að mestu unnið á starfsstöð Mannvits á Akureyri og er
framhald verkefnis sem m.a. hlaut styrk úr Orkusjóði í fyrra.
2.6.2010

Efnasamsetning gosöskunnar úr Eyjafjallajökli er svipuð og ösku sem fellur til við kolabrennslu, en hún er víða notuð til að bæta eiginleika steinsteypu. Starfsfólk Rannsóknarstofu Verkfræðistofu MANNVITS sáu því tækifæri til að kanna hvort askan úr eldgosinu gæti nýst sem bætiefni í steinsteypu eins og áðurnefnd kolaaska (flyash á ensku), en hún er nýtt að takmörkuðu leyti hér á landi, m.a. vegna hás flutningskostnaðar. Niðurstöðurnar má lesa
hér.
26.5.2010

Forystumenn átta leiðandi fyrirtækja í jarðhitanýtingu hér á landi
skjalfestu í gær þann ásetning sinn að starfa saman að
jarðvarmaverkefnum erlendis. Orkuveita Reykjavíkur (OR), sem er eitt
stærsta jarðhitafyrirtæki heims, leiðir samstarfið og aðild að því eiga
einnig þrjár stærstu verkfræðistofur landsins
25.5.2010

Ársskýrsla Mannvits fyrir árið 2009 er komin út og má nálgast
hér á
vefnum. Þrátt fyrir harðindi í rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja
náðist viðunandi rekstrarárangur en reksturinn dróst saman um 25% frá
árinu 2008. Farið var strax í aðgerðir 2008 til að bregðast við breyttum
aðstæðum og þeim var haldið áfram árið 2009 og því var reksturinn í
ásættanlegu jafnvægi.
25.5.2010

Hljóðvistarsvið Mannvits hefur unnið að einstaklega skemmtilegu verkefni
nú í vetur. Hugmyndin að verkefninu kviknaði í ljósi kreppuástandsins í
þjóðfélaginu og þeirri ósk að leita að ódýrari lausnum, þar sem innlend
vinna og efni eru notuð í frekara mæli en áður.
17.5.2010

Mannvit hefur nú lokið við að uppfæra kynningar- og leiðbeiningarit um undirbúning lítilla vatnsvirkjana. Um er að ræða 2. útgáfu en fyrsta útgáfa kom út 2003.
Uppfærslan snýr fyrst og fremst að breytingum sem orðið hafa á lagaumhverfi. Þar er helst að nefna raforkulög sem tóku gildi í apríl 2003.
10.5.2010

Þrír starfsmenn Mannvits voru staddir á Alþjóða jarðhitaráðstefnunni á
Bali í Indónesíu, World Geothermal Congress 2010, í lok apríl.
Ráðstefnan sem haldin er fimmta hvert ár var fjölmenn en hana sækja
jarðhitasérfræðingar, vísindamenn, tæknifræðingar, verkfræðingar og
forystumenn á sviði orkumála víða að úr heiminum.
10.5.2010

Gísli Guðmundsson jarðefnafræðingur, Ph.D., og starfsmaður Mannvits
slóst í fór með jarðfræðingum frá Háskóla Íslands ásamt tökuliði frá RÚV
að gosstöðvum á Fimmvörðuhálsi í lok mars. Tilgangur ferðarinnar var að
mæla hita í rennandi hrauni frá eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi. Hitinn
var annars vegar mældur með innrauðri myndavél og hins vegar með hitavír
(thermocouple). Hitavírinn og aflestrartæki eru í eigu Mannvits.
6.5.2010

Í dag hefst borun á fyrstu jarðhitaholunni nærri borginni Miskolc í
austurhluta Ungverjalands. Miskolc er ein af þremur stærstu borgum
landsins með um 200.000 íbúa. Áætlað er að holan verði um 2,3 km að
dýpt. Borun holunnar er fyrsti áfangi að því marki að virkja allt að 40
MW af jarðhita til húshitunar á svæðinu. Allar jarðeðlisfræði- og
jarðfræðirannóknir sem og hönnun holunnar og eftirlit með borun hennar
er í höndum Mannvits.
4.5.2010

Í vikunni sem leið komu út leiðbeiningar um þjóðvegi í þéttbýli. Mannvit
vann verkefnið í samvinnu við Vegagerðina og Verkís. Með
leiðbeiningunum setur Vegagerðin fram helstu forsendur og viðmið sem
hafa skal að leiðarljósi við skipulag og hönnun þjóðvega í þéttbýli.
30.4.2010

Alcoa, Þeistareykir ehf, Landsvirkjun og Landsnet hafa undanfarin þrjú
ár unnið að mati á umhverfisáhrifum fyrir álver á Bakka við Húsavík,
Þeistareykjavirkjun, Kröfluvirkjun II og háspennulínur frá Kröflu og
Þeistareykjum að Bakka. Í samræmi við úrskurð umhverfisráðherra frá 31.
júlí 2008 hafa fyrirtækin jafnframt í sameiningu unnið að sameiginlegu
mati á umhverfisáhrifum þessara fjögurra framkvæmda.
18.3.2010

Á aðalfundi Verkfræðingafélags Íslands 17. mars 2010 hélt Pálína
Gísladóttir, sviðsstjóri burðarvirkja hjá Mannviti, kynningu á reynslu
Mannvits af upplýsingalíkönum mannvirkja - BIM (Building Information
Model). Mannvit hefur á undanförnum árum unnið talsvert af sinni hönnun í
BIM hugbúnaði. Stærstu verkefnin eru Háskólinn í Reykjavík, Harpa við
Austurbakka og gagnaver í Reykjanesbæ.
9.3.2010

Í febrúar síðastliðinn gekk Mannvit í jarðhitasamband Kanada (Canadian
Geothermal Energy Acossiation –CanGEA). Jafnframt því er Mannvit skráð í
„Registrar of Qualified Persons Under the Canadian Geothermal Reporting
Code“. Þetta merkir að Mannvit hefur hæfa og reynda sérfræðinga í sínum
röðum til að greina frá rannsóknarniðurstöðum, flokka og meta
afkastagetu jarðhitasvæða eftir staðli Kanadíska jarðhitasambandsins
(Canadian Geothermal Reporting Code).
22.2.2010

Á hinum árlega Steinsteypudegi sem haldinn var s.l. föstudag, afhenti
forseti Íslands Steinsteypuverðlaunin 2010 fyrir framúrskarandi
steinsteypt mannvirki frá síðustu fimm árum. Alls bárust tilnefningar um
22 mannvirki frá ýmsum aðilum innan byggingageirans.
10.2.2010

Í maí í fyrra gerðu Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og
Félag kvenna í atvinnurekstri samstarfssamning um að stefna að því að
fjölga konum í forystusveit atvinnulífsins til loka árs 2013 þannig að
hlutur hvors kyns verði ekki undir 40%. Allir stjórnmálaflokkar styðja
þennan samning. Á fjölmennri ráðstefnu á Hótel Nordica í morgun riðu
tvö fyrirtæki á vaðið og skrifuðu undir stuðning við samninginn. Það
voru Mannvit og Edda útgáfa.
8.2.2010

Út eru komnar leiðbeiningar um umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga
sem unnar voru af Mannviti í samvinnu við Umferðarstofu og Vegagerðina
með styrk úr rannsóknarsjóði hennar. Leiðbeiningarnar eru hugsaðar sem
uppflettirit fyrir starfsmenn sveitarfélaga og aðra sem koma að gerð
umferðaröryggisáætlana.
11.1.2010

Í nýlega útkomnu
fréttablaði grísks viðskiptavinar Mannvits, S&B, er fjallað um AMT/MT mælingarnar sem framkvæmdar voru á Grísku eyjunum Milos og Kimolos í September og Október í haust.
Nánar um mælingarnar
hér