Burðarvirki
Burðarvirki
Mannvit hefur víðtæka reynslu og þekkingu á hönnun burðarvirkja og leitast við að samræma kröfur um útlit og hagkvæmni.
Burðarvirki er hvarvetna að finna, s.s. í húsbyggingum, brúar- og vegamannvirkjum, orku- og iðnaðarmannvirkjum og verkefnin eftir því fjölbreytt. Boðið er upp á heildstæða ráðgjöf fyrir jafnt hefðbundin burðarvirki sem og þau er teljast óvenjuleg eða nýstárleg.
Ávallt er beitt nýjustu tækni í hönnunarferlinu enda fylgjast ráðgjafar okkar vel með þróun fagsins og taka virkan þátt í að innleiða nýjungar á byggingarmarkaði. Jafnframt er lögð áhersla á gott samstarf við verkkaupa og aðra fagaðila til að tryggja sem bestan árangur.
Ferlið nær allt frá undirbúningi að fullnaðarhönnun og getur falið í sér hönnun, útboð og eftirlit. Gerð kostnaðar- og verkáætlana er mikilvægur hluti þjónustunnar. Þar gegnir Verðbanki Mannvits mikilvægu hlutverki.
Nánari upplýsingar:
Pálína Gísladóttir
palina@mannvit.is
S. 422 3000
Fjalar Hauksson
fh@mannvit.is
S. 422 3000