Iðnaður

Hljóðvist í iðnaði
Í iðnaði, framleiðslu og framkvæmdum ýmis konar skapast oft gífurlegur hávaði. Getur þetta verið mjög heilsuspillandi fyrir starfsmenn enda er heyrnarskaði eitt algengasta heilsuvandamálið á slíkum vinnustöðum. Mikilvægt er að viðeigandi ráðstafanir séu gerðar til að fyrirbyggja þetta og einnig til að tryggja að matsalir, búningsherbergi, aðliggjandi skrifstofur o.s.frv. séu hljóðlát. Þetta er gert með því að einangra vel hávaðagjafa, minnka hávaðamyndun með hljóðdeyfandi aðgerðum og góðri hljóðeinangrun milli rýma, svo eitthvað sé nefnt. Góð hljóðvist leiðir af sér úthvílda og afslappaða starfsmenn, sem aftur minnkar hættu á veikindum og slysum.
Hávaði frá iðnaði hefur ekki síst áhrif á umhverfi sitt hvort sem það er í þéttbýli eða sveit. Slíkur hávaði getur valdið miklum óþægindum fyrir þá sem nálægt eru enda er hávaði eitt algengasta umkvörtunarefni nágranna. Mikilvægt er að tryggja að útbreiðsla hávaða frá iðnaði sé eins lítil og kostur er og eru hávaðamörk vel skilgreind í reglugerðum. Hvort sem um er að ræða fyrirhugaða framkvæmd eða eldri starfsemi þarf að framkvæma hávaðamat þar sem útbreiðsla hávaðans er mæld eða reiknuð. Slíkt hávaðamat er svo notað til að ákvarða hversu miklum hávaðavörnum þarf að koma fyrir.