Hljóðvist
Mannvit veitir öfluga ráðgjöf á sviði hljóðvistar, hvort sem um er að ræða umferðarhávaða eða hljóðvistarvandamál í byggingum, nýjum jafnt sem eldri.
Notast er við fullkomin hljóðmælitæki og hugbúnað til að skoða mismunandi hljóðvistarlausnir. Hljóðdeyfandi efni í loft og veggi minnka ómun í viðkomandi rými og hljóðeinangrandi veggir, mýkri gólfefni og fljótandi gólf draga úr hljóðburði milli rýma. Draga má úr umferðarhávaða með hljóðmönum og betra skipulagi og einangra má hávaðagjafa með dempandi undirstöðum og hljóðeinangrandi skilrúmum.
Sérfræðingar okkar annast hönnun hljóðkerfa af öllum gerðum. Í rými þar sem áhersla er lögð á hljómgæði þarf sérstaklega að huga að þáttum sem snerta dreifingu hljóðsins.
Umfangsmikil verkefni tengjast kortlagningu á hávaða vegna öryggis- og vinnuverndarmála. Þar má nefna titrings-, orku- eða hljóðmælingar frá ákveðnum hávaðagjafa eða frá umferð bíla og annarra farartækja.
Nánari upplýsingar:
Sigrún Ragna Helgadóttir
sigrunr@mannvit.is
S. 422 3000