Framkvæmdaeftirlit
Framkvæmdaeftirlit
Framkvæmdaeftirlit er vaxandi þáttur í starfsemi Mannvits. Það nær til kostnaðar- og gæðaeftirlits og tryggir faglega heildaryfirsýn á öllum stigum framkvæmda.
Rík áhersla er lögð á fyrirbyggjandi eftirlit þar sem sérfræðingar okkar rýna hvern verkþátt, s.s. teikningar, verklýsingar, tilboð, verksamninga og kostnaðaráætlanir, áður en framkvæmdir hefjast.
Á framkvæmdatíma er fylgst með að vinnubrögð séu í samræmi við gerða samninga, staðla og opinberar samþykktir. Haldnir eru verkfundir, kostnaðar- og tímaáætlanir eru yfirfarnar og tryggt að upplýsingar skili sér á milli verkkaupa og verktaka. Við verklok er gengið frá skilagrein til verkkaupa með samantekt á helstu þáttum verksins.
Verkefni, sem eftirlitsmenn Mannvits sinna, eru margvísleg og tengjast m.a. úttektum og ástandskönnunum, áhættumati, áætlanagerð, verklýsingum og eftirliti með húsbyggingum og öðrum mannvirkjum.
Nánari upplýsingar:
Einar Ragnarsson
er@mannvit.is
S. 422 3000