innri vefur
Jarðfræði og bergtækni

                                

Jarðfræði og bergtækni

Sérfræðingar Mannvits annast allsherjar ráðgjöf í jarðfræði og bergtækni. Þjónusta á þessu sviði hefur um árabil verið mikil og er vaxandi hluti af starfsemi Mannvits.

Jarð- og berggrunnsathuganir eru nauðsynlegur þáttur fyrir skipulagningu byggðar og mannvirkjagerð. Kortleggja þarf gerð og þykkt lausra jarðlaga, gerð berggrunns, kanna sprungur og misgengi, stöðu grunnvatns o.fl.

Fyrir neysluvatnsöflun, hvort heldur úr brunnum eða borholum, er lagt mat á lekt og vatnsgæfni jarðlaga. Kortleggja þarf legu og vatnsleiðni jarðmyndana og gera lektar- og dæluprófanir.

Bergtækni leggur mat á eiginleika og gæði bergs fyrir hvers konar mannvirkjagerð. Rannsóknir og prófanir eru gerðar á bergi til að meta styrk, stífleika og stæðni fyrir grundun mannvirkja, bergfestur, bergskeringar, bergþéttingar o.fl. Veitt er ráðgjöf um sprengiaðferðir og metin stærðardreifing í grjótnámi.

Sérfræðingar Mannvits hafa margra ára reynslu við hönnun, ráðgjöf og eftirlit með gerð jarðganga, bæði í virkjunum og vegagerð.

Nánari upplýsingar:
Matthías Loftsson
ml@mannvit.is
S. 422 3000