Jarðtækni og grundun
Jarðtækni og grundun
Jarðtæknileg hönnun er mikilvægur liður í undirbúningi hvers konar mannvirkja og hafa sérfræðingar Mannvits mikla reynslu á þessu sviði. Umfangsmestu verkefnin tengjast flest virkjunum, stálþiljum í hafnargerð, stífluhönnun, samgöngumannvirkjum og stóriðju.
Ráðgjafar Mannvits búa yfir mikilli reynslu af jarðtæknilegri hönnun og eftirliti með slíkum mannvirkjum. Þeir meta burðarþol, reikna út stæðni, gera sigspár og meta hættu á ysjun í jarðskjálftum. Í stærri verkefnum er oft þörf umfangsmikilla og sérhæfðra jarðtæknirannsókna á berggrunni og eiginleikum lausra jarðlaga.
Rannsóknir eru skipulagðar á þeim jarðefnum, sem á að nýta, og einnig á grunni mannvirkja. Þar sem djúpt er niður á klöpp eru boraðar SPT- og/eða CPT-holur sem gefa til kynna eiginleika jarðvegsins. Einnig eru tekin óhreyfð sýni til að meta skerstyrk og sigeiginleika.
Stærri byggingar eru gjarnan grundaðar á staurum ef djúpt er niður á fast en þegar um léttari byggingar er að ræða er hægt að setja farg á byggingarreitinn til að ná fram áætluðu sigi sem byggingin myndi annars valda.
Nánari upplýsingar:
Jórunn Halldórsdóttir
jorunn@mannvit.is
S. 422 3000