Framkvæmdir og rannsóknir
Mannvit býr yfir mikilli reynslu á sviði verkefna- og byggingarstjórnunar, hvort sem um er að ræða verkefnastjórn álversframkvæmda, stórra verslunarmiðstöðva eða afmörkuð þróunar- eða skipulagsverkefni. Kostnaðareftirlit er ein af forsendum farsællar mannvirkjagerðar og alhliða framkvæmdaeftirlit tryggir heildaryfirsýn á öllum stigum framkvæmda.
Hjá Mannvit er mikil sérfræðikunnátta og reynsla á sviði jarðfræði og jarðtækni. Verkefnin eru fjölþætt, frá jarð- og berggrunnsathugunum til jarðtækni- og bergtæknimats á aðstæðum fyrir grundun mannvirkja, jarðgangagerð, stíflugerð o.fl.
Mannvit hefur starfrækt eigin rannsóknarstofu í vel á annan áratug með megináherslu á steypu- og steinefnarannsóknir og prófanir á sviði jarðtækni, bergtækni, vegtækni og fleira.
Innleiðing gæða- og öryggiskerfa er orðin forsenda fyrir rekstri fyrirtækja og opinberra stofnana. Sérfræðingar Mannvits hafa reynslu á sviði gæðamála, hvort sem um er að ræða greiningu áhættuþátta, vinnuvernd eða innleiðingu gæðakerfa vegna framleiðslueftirlits og vottunarmála.
Nánari upplýsingar:
Einar Ragnarsson
er@mannvit.is
S. 422 3000