innri vefur
Iðnaðarferli og vélbúnaður

Iðnaður              

Mannvit býður upp á víðtæka sérfræðiráðgjöf í véla- og iðnaðarverkfræði sem byggir á langri þjónustu við iðnfyrirtæki hér á landi og erlendis.

Starfsemin tekur á öllum þáttum vélaverkfræði, frá hugmynd að lokahandtaki. Stuðst er við besta tölvubúnað og forrit fyrir útreikninga og teikningar, svo sem þrívíðar teikningar, burðarþolsgreiningar og straumfræðigreiningar.

Meðal verkefnaflokka, sem við höfum sinnt, eru:

  • Vinnsla og endurnýting sorps, hreinsun hauggass og nýting metans.
  • Vatnsveitur, hitaveitur, gasveitur og fráveitur.
  • Olíubirgðastöðvar, bensínstöðvar og sjálfsafgreiðslustöðvar.
  • Birgðageymar og síló fyrir vatn, olíu, loðnu, ammoníak, mjöl og súrál.
  • Fiskimjölsverksmiðjur og ýmiss konar efnaverksmiðjur.
  • Kostnaðaráætlanir, hagkvæmniathuganir og matsgerðir.
  • Útboðsgögn fyrir verkframkvæmdir og þjónustu.

Sérhæfð verkefni á þessu sviði, sem Mannvit hefur leyst, eru t.d.:

  • Kítín- og kítosanverksmiðja á Siglufirði.
  • Sviðsbúnaður fyrir leikhús, m.a. í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu.

Nánari upplýsingar:
Gunnar Herbertsson
gunnar@mannvit.is
S. 422 3000

Gunnar Sv. Gunnarsson
gunnarsv@mannvit.is
S. 422 3000