innri vefur
Orka

                    

Mannvit veitir alhliða ráðgjöf á öllum sviðum orkumála og hefur unnið að uppbyggingu flestra orkuvirkja hér á landi á síðustu áratugum, allt frá rannsóknum og öðrum undirbúningi til hönnunar og framkvæmda.

Sérfræðingar Mannvits hafa haft frumkvæði og forystu á heimsvísu um nýtingu jarðvarma til orkuframleiðslu, hvort sem um er að ræða virkjun háhitasvæða til rafmagns- og vatnsframleiðslu eða hönnun virkjana sem framleiða rafmagn með nýtingu lághita í tvívökvakerfum.

Mannvit býr yfir mikilli þekkingu og reynslu í gerð stórra sem smárra vatnsaflsvirkjana og sinnir jafnframt umfangsmiklum verkefnum við byggingu háspennulína, tengivirkja og spennistöðva.

Nánari upplýsingar:
Sigurður St. Arnalds
ssta@mannvit.is
S. 422 3000