Vatnsaflsvirkjanir
Mannvit hefur unnið að undirbúningi eða framkvæmdum við flestar vatnsaflsvirkjanir sem reistar hafa verið hér á landi.
Sérfræðingar okkar áætla m.a. stofnkostnað, fjármagnskostnað og mannaflaþörf. Þeir framkvæma umhverfismat og rennslisútreikninga, reikna út burðarþol mannvirkja og gera jarðtæknilegar úttektir og rannsóknir.
Meðal vatnsaflsvirkjana, sem ráðgjafar Mannvits hafa unnið að, eru:
-
Hönnun Jökulsárveitu sem er hluti Kárahnjúkaverkefnisins.
-
Framkvæmdaeftirlit með göngum og stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar.
-
Verk-, útboðs- og lokahönnun Vatnsfellsvirkjunar.
-
Eftirlit með byggingu 5. áfanga Kvíslaveitu.
-
Hönnun Sigölduvirkjunar.
Af smærri virkjunum má t.d. nefna Djúpadalsvirkjun (1,8 MW), Múlavirkjun (6 MW) og hönnun 1,2 MW virkjunar í Ammassalik á Grænlandi.
Nánari upplýsingar:
Ómar Ö. Ingólfsson
omar@mannvit.is
S. 422 3000
Gunnar Herbertsson
gunnar@mannvit.is
S. 422 3000