Samgöngur
Samgöngur
Mannvit býr að áratuga þekkingu við undirbúning og hönnun samgöngumannvirkja í þéttbýli sem dreifbýli, hvort sem um er að ræða hafnarmannvirki, flugvelli, vegi eða brýr. Sérfræðingar fyrirtækisins hafa jafnframt reynslu af hönnun og undirbúningi fjölda jarðganga.
Notkun nýjustu tölvuforrita, loftmyndagrunna og starfrænna korta gerir okkur kleift að leggja fram myndrænar tillögur fyrir verkkaupa til að vega og meta mismunandi lausnir út frá ólíkum forsendum.
Aðrir ferðamátar en bílferðir eru ekki síður mikilvægir. Við búum að mikilli reynslu og þekkingu á hönnun mannvirkja fyrir umferð gangandi og hjólandi vegfarenda, sem og fyrir almenningssamgöngur. Ávallt er mikil áhersla lögð á alla öryggisþætti við hönnun samgöngumannvirkja.
Nánari upplýsingar:
Tryggvi Jónsson
tj@mannvit.is
S. 422 3000