Veitur
Mannvit býður upp á víðtæka þjónustu við skipulag og hönnun veitumannvirkja. Hvort sem um er að ræða fráveitur, hitaveitur eða vatnsveitur búa sérfræðingar fyrirtækisins að áratuga reynslu á öllum sviðum veitumála, s.s. við hönnun lagna og vélbúnaðar, kerfisgreiningar, rennslisútreikninga og mælingar.
Í samstarfi við opinbera jafnt sem einkaaðila hefur Mannvit sinnt fjölmörgum verkefnum af öllum stærðum og gerðum á sviði vatns- og hitaveitumála. Má þar t.d. nefna vatnsöflun, hönnun aðveitu- og dreifikerfa og hönnun dælustöðva.
Ráðgjafar fyrirtækisins hafa einnig gert forathuganir fyrir jarðvarmaveitur á köldum svæðum, sem er forsenda leitar að heitu vatni víða um land, og jafnframt tekið þátt í mörgum þessara verkefna.
Á sviði fráveitumála hefur Mannvit sinnt fjölmörgum verkefnum í samstarfi við opinbera aðila og einkaaðila. Þar má t.d. nefna hönnun fráveitulagna, útrása og skólpdælu- og hreinsistöðva, hreinsun ofanvatns, hermun lagnakerfa, fóðrun fráveitulagna og tilraunir með náttúruleg fráveitukerfi.
Nánari upplýsingar:
Brynjólfur Björnsson
bb@mannvit.is
S. 422 3000