innri vefur
Fjarskipti

              

Mannvit hefur áralanga reynslu á sviði alhliða fjarskipta og fjarskiptakerfa fyrir fyrirtæki, stofnanir og stjórnvöld og þjónustu við fyrirtæki sem starfa í fjarskiptageiranum. Fyrirtækið veitir fjarskiptaráðgjöf þar með talið við forathuganir og úttektir, kostnaðaráætlanir, þarfagreiningar, hönnun, útboð, prófanir og mælingar, gangsetningu kerfa og þjónustu og verkefnisstjórn.

Við aðstoðum fyrirtæki og stofnanir við kaup á fjarskiptabúnaði og fjarskiptaþjónustu, skipulagningu uppbyggingar fjarskiptakerfa og notkun þeirra og hönnun umfangsmikilla net- og símkerfa. Við bjóðum einnig kostnaðar- og gæðaeftirlit og álags- og ástandagreiningar.

Við tökum að okkur lítil og stór verkefni, frá litlum símkerfum upp í landsdekkandi fjarskiptaþjónustu. Við höfum meðal annars mikla reynslu af ljósleiðarkerfum, þráðlausum net- og símkerfum, IP-símkerfum og gagnaflutningskerfum.

Í samvinnu við sérfræðinga á öðrum sérsviðum Mannvits veitum við einnig þverfaglega ráðgjöf um hönnun samskiptakerfa og rekstur þeirra.  Mörg stærri verkefni sviðsins eru unnin í náinni samvinnu við sérfræðinga Mannvits á sviði upplýsingatækni, stjórnkerfa og hugbúnaðar.

Nánari upplýsingar:
Magnús Hauksson
magnus@mannvit.is
S. 422 3000