innri vefur
Stjórnkerfi

              

Stjórnkerfi

Mannvit  hefur áratuga reynslu á sviði stjórnkerfa fyrir stóriðju, iðnað af ýmsum toga, orkuver, raforkuflutning, byggingar og veitur rafmagns, hita, vatns og frárennslis og fleira.   Fyrirtækið veitir alhliða þjónustu á þessu sviði s.s. ráðgjöf, áætlanagerð, útboð, verkefnisstjórn, hönnun, forritun, prófanir, gangsetningu, gerð rekstrarhandbóka,  þjálfun starfsmanna og aðstoð við rekstur.

Við önnumst ástandskönnun eldri stjórnbúnaðar og hættugreiningu vinnsluferla því tengda.  Einnig bjóðum við þjónustusamninga vegna reksturs stjórnkerfa.

Verkefnin eru af öllum stærðum, allt frá litlum iðntölvustýringum upp í kerfiráða stærstu orkufyrirtækja og eru jafnt innlend sem erlend.

Við höfum mikla reynslu af ráðgjöf vegna umfangsmikilla og mikilvægra stjórnkerfa í stóriðju og hjá orkufyrirtækjum sem uppfylla háar kröfur um rekstraröryggi.

Í samvinnu við sérfræðinga á öðrum sérsviðum Mannvits veitum við þverfaglega ráðgjöf um hönnun vinnsluferla og tilheyrandi stjórnkerfa og rekstur þeirra.  Mörg stærri verkefni sviðsins eru unnin í náinni samvinnu við sérfræðinga Mannvits á svið fjarskipta og á sviði  sérhæfðrar hugbúnaðargerðar og ráðgjafar.

Nánari upplýsingar:
Jóhann Þ. Magnússon
johann@mannvit.is
S. 422 3000

Sigurður G. Símonarson
sigsim@mannvit.is
S. 422 3000