2.11.2011

Mannvit á jarðhitaráðstefnu í Bandaríkjunum

Mannvit tók þátt í árlegri jarðhitaráðstefnu Geothermal Energy Association (GEA) sem haldin var í San Diego í Bandaríkjunum dagana 23-26 október. Mannvit deildi bás með franska félaginu Technip sem er samstarfsaðili Mannvits í byggingu jarðhitavirkjana í Bandaríkjunum og víðar. Félögin hafa nú unnið saman að því að bjóða þjónustu sína á ameríkumarkaði síðan 2009.

Þátttakan í sýningunni þótti takast með eindæmum vel, þar sem aðsókn gesta á básinn var mikil, fjölmörg fyrirtæki sýndu áhuga á þjónustu Mannvits og básinn fékk einnig verðlaun sem besti básinn á meðal smærri bása á sýningunni, þ.e. „best in show“.

 

 

 

 

 

GRC