Fréttin öll
1.12.2011
Mannvit á ráðstefnu í Kenya

Í lok nóvember tók Mannvit þátt í ráðstefnu og sýningu sem haldin var í Kenyatta International Conference Centre í Kenya. Samstarfsaðilar voru Verkís, Ísor og Vatnaskil. Umfjöllunarefni ráðstefnunnar var notkun jarðhita, en talið er að nýtanlegur jarðhiti í Kenya sé allt að 10.000 MW. Í landi þar sem innan við 20% af íbúunum hafa aðgang að raforku er áhuginn mikill fyrir nýtingu jarðhita. Þurrkatímar hafa valdið afföllum í raforkuframleiðslu vatnsaflsvirkjana þannig að megin áherslan í dag er á nýtingu jarðhita.
Þátttakendur á ráðstefnunni voru flestir frá Kenya, en um 400 manns voru skráðir á ráðstefnuna. Fjöldi aðila heimsótti básinn okkar og var greinilegt að margir vildu heyra af uppbyggingu jarðvarmavirkjana á Íslandi.
Auk ráðstefnunnar gafst þátttakendum færi á að heimsækja helstu jarðhitasvæðin í Kenya en þau eru í um 100 km fjarlægð frá Nairobi. Olkaria svæðið er lengst komið í nýtingu, en þar eru framleidd um 200 MW af raforku. Fyrirtækin sem stóðu saman að kynningunni á ráðstefnunni í Nairobi eru einmitt að vinna að verkefni í Olkaria sem felst í að meta jarðhitageyminn og þær virkjanir sem eru á svæðinu, með tilliti til frekari uppbyggingar svæðisins.