Fréttin öll
5.12.2011
Mannvit tekur þátt í ráðstefnu GeoPower Europe
Mannvit er þátttakandi í árlegri jarðhitaráðstefnu og sýningu GeoPower Europe sem fram fer í Milanó á Ítalíu 6-7 des. Að þessu sinni verður Mannvit með bás á sýningunni (nr.14) ásamt því að Sigurður Lárus Hólm, framkvæmdastjóri Budapest skrifstofunnar mun halda erindi sem ber heitið “From Resource to Revenue - Geothermal Heating Plants in Europe”. Erindi Sigurðar verður flutt 7 desember í sal 2 og fjallar um Ungverjalandsverkefni félagsins, leiðir til að auka líkurnar á velgengni í jarðhitaborun og almennt um jarðhitaleit í mið- og austur Evrópu.
Ráðstefnan er haldin í tengslum við evrópska jarðhitafélagið (European Geothermal Energy Council – EGEC) og þar mun fjöldi þekktra forsvarsmanna stórfyrirtækja og sérfræðinga á sviði jarðhita flytja erindi ásamt því að fyrirtæki sýna vöru og þjónustu sína. Að þessu sinni er GeoPower Europe ráðstefnan haldin í NH Milanofiori ráðstefnusalnum í Mílanó á Ítalíu. Til þess að sjá bækling ráðstefnunnar er hægt að smella hér eða vef GeoPower Europe.