Jafnréttisstefna

Stefna Mannvits er sú að gæta skuli fyllsta jafnréttis og að hver starfsmaður sé metinn á eigin forsendum. Þannig er tryggt að mannauður fyrirtækisins nýtist sem best. Mismunun er óheimil, í hvaða formi sem hún birtist og er það stefna fyrirtækisins að útrýma slíkri mismunun komi hún í ljós. Hver starfsmaður Mannvits er metinn að verðleikum, óháð kynferði, kynþætti, aldri, þjóðerni eða trú.

Framkvæmd og umfang

Jafnréttisstefna þessi nær til allrar starfsemi fyrirtækisins. Stjórnendur bera sameiginlega ábyrgð á framgangi jafnréttismála í samræmi við þessa áætlun, en endanleg ábyrgð er hjá framkvæmdastjórn.

Starfsmannastjóri ber ábyrgð  á að áætlun þessari sé fylgt. Hann hefur frumkvæði að því að viðhalda upplýsingum um þætti sem varða jafnréttismál og gerir árlega tillögu um endurskoðun á jafnréttisstefnunni, ef þurfa þykir.

Markmið

  • Við ákvörðun um ráðningu og tilfærslur er lögð áhersla á jafnrétti og jöfn tækifæri.
  • Gæta skal jafnræðis hvað varðar ábyrgð og þátttöku starfsmanna í starfshópum og nefndum á vegum fyrirtækisins.
  • Greiða skal sömu laun og kjör fyrir sambærileg störf.
  • Starfsmenn eiga jafnan aðgang að starfsmenntun og þjálfun.
  • Með sveigjanlegum vinnutíma er starfsmönnum gert kleift að samræma vinnu og fjölskyldulíf. Stjórnendur og starfsmannastjóri bera sameiginlega ábyrgð á að kynna starfsfólki þennan möguleika.
  • Kynferðisleg áreitni og einelti er ekki liðið hjá Mannviti.

Gerð verður úttekt á stöðu jafnréttismála hjá Mannviti. Þeirri úttekt skal lokið eigi siðar en í lok mars 2009.