Styrktarbeiðni

Mannvit styrkir fjölmörg málefni á hverju ári. Hér til hliðar getur þú sótt um styrk eða lagt inn beiðni fyrir auglýsingu.

Í hverjum mánuði er farið yfir umsóknir en vegna fjölda er því miður ekki hægt að verða við öllum beiðnum. Hægt er að leggja inn styrktarbeiðni frá 1. hvers mánaðar til og með 25. hvers mánaðar. Öllum er frjálst að sækja um styrkinn og allar umsóknir fara í sameiginlegan pott sem dregið er úr 27. hvers mánaðar. Í pottinum eru 50 þúsund krónur mánaðarlega. Með þessu vill Mannvit gæta þess að allir hafi jafnan aðgang að styrkjum fyrirtækisins.

Við biðjum félagasamtök sem eru að selja logo eða styrktarlínur í blöð síns félags að fylla út styrktarbeiðnina á netinu og fer hún þar með í pottinn. Hægt er að nálgast merki Mannvits hér að neðan.

Allar styrktarbeiðnir eru meðhöndlaðar eins.

Hér er hægt að nálgast merki Mannvits.

Hægri smella á linkana hér að neðan og velja "Save target as"

 
Mannvit standandi  
JPG | Illustrator  

 
Mannvit liggjandi
 
JPG | Illustrator