Í Vatnsskarðsnámu í Háuhnúkum við Vatnsskarð hefur Alexander Ólafsson ehf. stundað efnistöku frá árinu 1993. Með mati á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar efnistöku er unnið að því að tryggja rekstur Alexanders Ólafssonar ehf. til næstu 25 ára. Áætluð efnistaka á tímabilinu er 20.000.000-25.000.000 m3.
Í frummatsskýrslu er fjallað um umhverfisáhrif fyrirhugaðrar stækkunar efnistökusvæðis Vatnsskarðsnámu. Matsferlið er liður í að útvega framkvæmdaleyfi fyrir áframhaldandi rekstri námunnar. Miðað við fyrirhuguð áform mun efnistökusvæðið stækka um 53 ha. Heildar flatarmál svæðisins er að lokum áætlað um 81 ha.
Frummatsskýrslan er í athugun hjá Skipulagsstofnun. Allir hafa rétt til að kynna sér frummatsskýrsluna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir við frummatsskýrsluna skal senda til Skipulagsstofnunar.
Frestur til að gera athugasemdir er til 20. apríl 2009.
Frummatsskýrsluna má nálgast hér.