1.1.0001 02.04.09

EFNISTAKA ÚR LAMBAFELLI Í LANDI BREIÐABÓLSSTAÐAR, SVEITARFÉLAGINU ÖLFUSI, frummatsskýrsla

Í námu í Lambafelli í landi Breiðabólsstaðar í Sveitarfélaginu Ölfusi hefur efnistaka verið stunduð í um 20 ár.  Hlíðardalsskóli ehf. tók við rekstri námunnar á árinu 2008.  Með mati á umhverfisáhrifum fyrirhugaðrar efnistöku er unnið að því að tryggja rekstur námunnar til að minnsta kosti næstu 30 ára.  Áætluð efnistaka á tímabilinu er 12.000.000-15.000.000 m3.

Í frummatsskýrslu er fjallað um umhverfisáhrif fyrirhugaðrar stækkunar efnistökusvæðis í Lambafellsnámu.  Matsferlið er liður í að útvega framkvæmdaleyfi fyrir áframhaldandi rekstri námunnar.  Miðað við fyrirhuguð áform mun efnistökusvæðið stækka um rúmlega 21 ha.  Heildar flatarmál svæðisins er að lokum áætlað 29,2 ha.

Frummatsskýrslan er í athugun hjá Skipulagsstofnun.  Allir hafa rétt til að kynna sér frummatsskýrsluna og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir við frummatsskýrsluna skal senda til Skipulagsstofnunar.

Frestur til að gera athugasemdir er til 16. maí 2009.

Nálgast má frummatsskýrsluna hér