innri vefur
Sjá nánar
29.4.2010

Mat á umhverfisáhrifum háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum

Frummatsskýrsla

Landsnet hf. hyggst reisa tvær 220 kV háspennulínur frá virkjunarsvæðum á háhitasvæðum í Þingeyjarsýslum að Bakka við Húsavík.  Háspennulínurnar munu liggja um sveitarfélögin Skútustaðahrepp, Þingeyjarsveit og Norðurþing, um 60 km leið.  Bygging háspennulínanna tengist frekari nýtingu háhitasvæðanna með nýjum virkjunum á Þeistareykjum, í Kröflu og Bjarnarflagi vegna áforma um orkufrekan iðnað á Bakka við Húsavík.  Auk tveggja háspennulína felur framkvæmdin í sér lagningu 132 kV jarðstrengs frá fyrirhugaðri Bjarnarflagsvirkjun að tengivirki við Kröflu.

Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br.  Hafin er opinber kynning á vegum Skipulagsstofnunar og má nálgast frummatsskýrslu hér á síðunni ásamt viðaukum. Í frummatsskýrslunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst og gerð grein fyrir grunnástandi, helstu umhverfisþáttum og rannsóknum ásamt umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.

Allir hafa rétt á að kynna sér frummatsskýrsluna og koma athugasemdum og fyrirspurnum á framfæri til Skipulagsstofnunar sbr. upplýsingar á heimasíðu stofnunarinnar.

Frestur til að gera athugasemdir er til 14. júní 2010.

Sækja frummatsskýrslu – apríl 2010. (14mb)

Sækja frummatsskýrslu - apríl 2010. (60mb)

Viðaukar:

Vidauki_1_Landslag.pdf

Vidauki_2_Efnistökusvæði-jarðmyndanir.pdf

Vidauki_3_Gróðurathugun.pdf

Vidauki_3_Gróðurathugun_a_linuleið_B.pdf

Vidauki_3_Gróðurathugun-Kortabok.pdf

Vidauki_4_Fuglaskýrsla.pdf

Vidauki_5_Ferðaþjónusta.pdf

Vidauki_6_Fornleifar.pdf

Vidauki_7_Þeistareykjavegur__forhönnun.pdf