Sjá nánar
29.4.2010
Mat á umhverfisáhrifum Kröfluvirkjunar II
Frummatsskýrsla
Landsvirkjun áformar að reisa allt að 150 MWe jarðhitavirkjun við Kröflu í Skútustaðahreppi, Kröfluvirkjun II. Á svæðinu er fyrir 60 MWe Kröflustöð þannig að með fyrirhugaðri nýrri virkjun verður orkuvinnsla á svæðinu að samanlögðu 210 MWe. Markmið Landsvirkjunar með byggingu nýrrar jarðhitavirkjunar í Kröflu er að nýta jarðhita á sjálfbæran hátt til framleiðslu rafmagns og sinna þannig þörfum markaðarins hverju sinni.
Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br. Hafin er opinber kynning á vegum Skipulagsstofnunar og má nálgast frummatsskýrslu hér á síðunni ásamt viðaukum. Í frummatsskýrslunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst og gerð grein fyrir grunnástandi, helstu umhverfisþáttum og rannsóknum ásamt umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
Allir hafa rétt á að kynna sér frummatsskýrsluna og koma athugasemdum og fyrirspurnum á framfæri til Skipulagsstofnunar sbr. upplýsingar á heimasíðu stofnunarinnar.
Frestur til að gera athugasemdir er til 14. júní 2010.
Sækja frummatsskýrslu – apríl 2010.
Viðaukar:
Vidauki_1_Landslag.pdf
Vidauki_2_Afmörkun_vatnsverndarsvæða.pdf
Vidauki_3_Grunnförgun_skiljuvatns.pdf
Vidauki_4_Goðurathugun.pdf
Vidauki_4_Groðurathugun-Kortabok.pdf
Vidauki_5_Gróðurathugun_vidbót.pdf
Vidauki_6_Fuglaskýrsla.pdf
Vidauki_7_Dreifingarspá.pdf
Vidauki_8_Ferðaþjónusta_og_útivist.pdf
Vidauki_9_Hljóðkort.pdf
Vidauki_10_Fornleifar.pdf