Landsvirkjun fyrirhugar boranir allt að þriggja
rannsóknaborhola á einum borteig í Gjástykki í Þingeyjarsveit.
Áform um boranir á þessu svæði eru liður í
samstarfi Landsvirkjunar og Þeistareykja ehf. um rannsóknir og könnun á
virkjunarmöguleikum háhitasvæða á Norðausturlandi, það er á Þeistareykjum, í
Kröflu, Bjarnarflagi og Gjástykki.
Jarðhitakerfið í Gjástykki er talið ná yfir um 10 km2
svæði. Til að fá úr því skorið hvort um
nýtanlegan jarðhita til vinnslu sé að ræða þarf að bora rannsóknaholur og afla
með því nauðsynlegra gagna um eðli jarðhitans í Gjástykki. Samkvæmt stefnu viðkomandi sveitarfélaga
verður Gjástykki aftast í framkvæmdaröð jarðhitavirkjana í Þingeyjarsýslum. Í fyrstu verður lögð áhersla á rannsóknir
þar, þar með taldar rannsóknaboranir.
Í frummatsskýrslu er
fjallað um umhverfisáhrif fyrirhugaðra rannsóknaborana. Frummatsskýrslan er í athugun hjá
Skipulagsstofnun. Allir hafa rétt til að
kynna sér frummatsskýrsluna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir við frummatsskýrsluna skal senda
til Skipulagsstofnunar.
Frestur til að gera
athugasemdir er til 28. ágúst 2009.
Frummatsskýrsla