innri vefur
Sjá nánar
23.9.2009

Álver, jarðhitavirkjanir og háspennulínur Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum


Tillaga að matsáætlun

Alcoa, Þeistareykir ehf., Landsvirkjun og Landsnet hf., standa að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru í Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi.

Samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 eru framkvæmdirnar háðar sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum, í samræmi við 2. mgr. 5. greinar í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.  Matið nær til fjögurra ofangreindra framkvæmda.

Tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum verkefnanna fjögurra var skilað inn til Skipulagsstofnunar 23. september samhliða nýjum tillögum að matsáætlunum fyrir Þeistareykjavirkjun og Kröfluvirkjun II. Skipulagsstofnun hefur þegar fallist á matsáætlun Landsnets fyrir háspennulínur að Bakka og matsáætlun Alcoa fyrir álver á Bakka.

Allir hafa rétt til að kynna sér tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Senda skal skriflegar athugasemdir til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166 í Reykjavík. 

Hægt er að nálgast  tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat hér á síðunni. 

    Tillaga að matsáætlun sameiginlega matsins

Einnig eru tenglar inn á heimasíður viðkomandi fyrirtækja þar sem nálgast má matsáætlanir fyrir framkvæmdirnar fjórar. 

     Álver Alcoa á Bakka

     Þeistareykjavirkjun

     Kröfluvirkjun II

     Háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík

Frestur til að gera athugasemdir er til 12. október 2009.