22.1.2002

Fyrirhuguð stækkun álvers Ísals í Straumsvík (tillaga að matsáætlun)

Íslenska álfélagið hf. lagði fram tillögu að matsáætlun í október 2001 þar sem gerð var áætlun um mat á umhverfisáhrifum fyrir stækkun álversins um 200.000 tonn á ári í 400.000 tonn á ári í 2. áföngum, 100.000 tonn á ári hvor áfangi. Skipulagsstofnun samþykkti tillögu að matsáætlun með skilyrðum í bréfi þann 7. nóvember 2001. ISAL hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að hagkvæmara sé að miða fyrirhugaða stækkun við nokkuð meiri framleiðslugetu eða stækkun um 260.000 tonn á ári í allt að 330.000 tonn á ári í 1. áfanga og í 460.000 tonn á ári í 2. áfanga. Eftir samráð við Skipulagsstofnun var ákveðið að endurgera tillögu að matsáætlun m.t.t. viðkomandi breytinga á framleiðslugetu álversins. Því er hafið að nýju matsferli þar sem tillaga að matsáætlun er kynnt og send til Skipulagsstofnunar til umfjöllunar. Skv. reglugerð um mat á umhverfisáhrifum nr. 671/2000 hefur Skipulagsstofnun 4 vikur til að úrskurða um tillögu að matsáætlun.

Tillagan verður aðgengileg á heimasíðu ISAL (www.isal.is).

Til að geta skoðað skýrslu og viðauka þarf Acrobat Reader, ókeypis tilfang, sem hægt er að nálgast með því að smella hér.

Tillaga að matsáætlun fyrirhugaðrar stækkunar álvers Ísals í Straumsvík