10.6.2003

Inntakslón við Laxárstöðvar

Komin eru í kynningu drög að tillögu að matsáætlun vegna hækkunar stíflu og myndunar inntakslóns ofan Laxárstöðva. Kynningin hófst 26. júní sl. og stendur til 10. júlí nk. eða í tvær vikur samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. Stefnt er að hækkun stíflunnar um 10 -12 metra og yrði stærð inntakslónsins um 0,3 km2.

 

Landsvirkjun er framkvæmdaraðili verksins og Hönnun er henni til ráðgjafar vegna mats á umhverfisáhrifum.

 

Með kynningunni gefst almenningi kostur á að gera athugasemdir við drög að tillögu að matsáætlun. Senda má tölvupóst til Landsvirkjunar á netfangið landsvirkjun@lv.is. Einnig er hægt að senda athugasemdir til Landsvirkjunar, merkt Laxárstöðvar ? Hækkun stíflu og myndun inntakslóns, Landsvirkjun, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík til 10. júlí 2003.

 

 

Sjá drög matsáætlunarinnar í heild sinni hér (2.5 MB - pdf).