Sjá nánar
9.8.2003
Snjóflóðavarnir á Norðfirði (tillaga að matsáætlun)
Tillaga Fjarðabyggðar að matsáætlun snjóflóðavarna í Tröllagili á Norðfirði hefur verið send Skipulagsstofnun. Skipulagsstofnun hefur leitað umsagnar Fjarðabyggðar, Byggðastofnunar, Fornleifaverndar ríkisins, Heilbrigðiseftirlits Austurlands, Umhverfisstofnunar og Veðurstofu Íslands.
Skipulagsstofnun stefnir að því að ákvörðun um tillögu að matsáætlun liggi fyrir 10. september n.k.
Sjá tillögu að matsáætlun snjóflóðavarna á Norðfirði.