innri vefur
Sjá nánar
14.11.2003

Rafskautaverksmiðja á Katanesi í Hvalfirði

KAPLA hf. er að kanna möguleika á að byggja rafskautaverksmiðju á Katanesi í Hvalfirði. Fyrirhuguð verksmiðja verður með allt að 340.000 t ársframleiðslu. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við byggingu verksmiðjunnar sem fyrst. Áætlaður byggingartími er um 2 ár. Stefnt er að því að hefja vinnu við gerð starfsleyfis í samráði við Umhverfisstofnun samhliða mati á umhverfisáhrifum. Framkvæmd þessi er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, gr. 5, í 1. viðauka laganna og er KAPLA framkvæmdaaðili verksins.