Sjá nánar
6.5.2004
Landfylling við Gufunes í Reykjavík (tillaga að matsáætlun)
Hafin er athugun Skipulagsstofnunar á tillögu að matsáætlun vegna landfyllinga við Gufunes í Reykjavík. Fyllingarnar verða væntanlega unnar í tveimur áföngum og er annars vegar um að ræða 34 ha landfyllingu við vestanvert Gufunes og hins vegar 12 ha fyllingu út frá norðanverðu Gufunesi út í Eiðsvík. Heildarumfang fyllinganna verður því um 46 ha. Landfyllingarnar eru ætlaðar undir blandaða byggð. Framkvæmdaraðili er Reykjavíkurborg en mat á umhverfisáhrifum er unnið af Hönnun hf.
Skipulagsstofnun áætlar að ákvörðun um tillögu að matsáætlun liggi fyrir í byrjun júní næstkomandi. Almenningi gefst kostur á að koma athugasemdum um tillöguna til Skipulagsstofnunar innan þess tíma sem gefinn er á heimasíðu þeirra.
Hægt er að skoða tillöguna með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.