innri vefur
Sjá nánar
19.12.2000

Höfn við iðnaðarsvæðið í Reyðarfirði

Í tengslum við fyrirhugaða byggingu álvers, á iðnaðarlóð við Hraun í Reyðarfirði í Suður-Múlasýslu, auk annarrar hafsækinnar starfsemi á svæðinu áætlar Hafnarsjóður Fjarðabyggðar að byggja þar hafnarmannvirki.

 

Hafnarsjóður Fjarðabyggðar verður framkvæmdaraðili, rekstraraðili og eigandi hafnarinnar.

Fyrirhuguð framkvæmd er hluti af Noral verkefninu sem hefur verið í gangi um nokkurra ára skeið en verkið felur í sér eftirfarandi:

  • Vatnsaflsvirkjanir á Austurlandi
  • Álver á Reyðarfirði ásamt nauðsynlegum stoðveitum
  • Lóð og hafnaraðstaða
  • Aðrar fjárfestingar í stoðveitum

Drög að tillögu að matsáætlun sem hér liggur fyrir lýsir fyrirhugaðri

framkvæmd og framkvæmdasvæði í stuttu máli og hvernig framkvæmdin

samræmist skipulagsáætlunum svæðisins. Kynnt er áætlun um hvaða þætti

framkvæmdarinnar og umhverfis verði lögð mest áhersla á í skýrslu um mat

á umhverfisáhrifum. Einnig er fjallað um hvaða gögn eru fyrir hendi og þær

viðbótarathuganir sem fyrirhugaðar eru á vegum framkvæmdaraðila vegna

mats á umhverfisáhrifum. Að lokum er fjallað um undirbúning

framkvæmdarinnar og um kynningu og samráð á meðan á matsferlinu

stendur.

Tillaga að matsáætlun er unnin fyrir Fjarðabyggð af Hönnun hf.

 

Mat á umhverfisáhrifum - Tillaga að matsáætlun

 

Myndir

Mynd 1 | Mynd 2 | Mynd 3 | Mynd 4 | Mynd 5 | Mynd 6