innri vefur
Sjá nánar
8.7.2005

Sorpurðun að Strönd - (tillaga að matsáætlun)

Nú er hafið matsferli vegna stækkunar urðunarstaðar að Strönd í Rangárþingi ytra. Sorpstöðin er flokkunar- og urðunarstöð og er byggðasamlag með starfssvæði yfir Rangárvallasýslu að Eyjafjöllum undanskildum. Sveitarfélögin Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Ásahreppur standa að sorpstöðinni.


Núverandi urðunarsvæði er um 10 hektarar að stærð og er áætlað að það endist til ársins 2007. Fyrirhuguð stækkun svæðisins er til norðausturs, alls tæpir 18 hektarar, og er gert ráð fyrir að það endist til ársins 2037.
Heildarmagn sem tekið yrði á móti er allt að 5.450.000 kg á ári.

Gert er ráð fyrir að unnið verði að starfsleyfismálum samhliða mati á umhverfisáhrifum í samráði við Umhverfisstofnun en núgildandi starfsleyfi heimilar urðun á 500.000 kg á ári.



Sorpurðun að Strönd – tillaga að matsáætlun