Sjá nánar
13.2.2006
Mýrargata - lagning götu í stokk
Hafið er mat á umhverfisáhrifum vegna breytinga á Mýrargötu í Reykjavík. Fyrirhugað er að færa götuna að hluta til norðurs á núverandi slippasvæði og leggja hana í stokk á milli Ánanausta og Ægisgötu.
Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar í samstarfi við Vegagerðina er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum er unnið af Hönnun hf. Drög að tillögu að matsáætlun framkvæmdarinnar eru nú til kynningar og stendur hún til þriðjudagsins 28. febrúar 2006. Öllum er frjálst að koma fram með athugasemdir og ábendingar fram að þeim tíma. Drögin liggja einnig frammi í þjónustumiðstöð Vesturbæjar í Vesturgarði, Hjarðarhaga 45 - 47.